157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[15:44]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég tel að lítil þjóð eins og Ísland þurfi að vera í margháttuðu sambandi við bæði Evrópusambandið og NATO og Bandaríkin. Þannig tryggjum við okkur. Við þurfum að eiga vini, sama hvar við erum. Eins og hv. þingmaður veit þá er breytt heimsmynd og við þurfum að tryggja hagsmuni okkar. Við þurfum að vera nálægt Evrópu. Við þurfum að vera nálægt Norðurlöndunum. Við þurfum líka að vera nálægt Bandaríkjunum og við þurfum að vera nálægt NATO. Við erum lítil, herlaus þjóð í miðju Atlantshafi þannig að við þurfum að eiga vini alls staðar og ég held að það sé gagnlegt fyrir okkur að skoða aðild að Evrópusambandinu með tilliti til varnar- og öryggismála. Ég held að það sé bara gagnlegt að kanna það. En það er líka mikilvægt að við styrkjum sambandið við Bandaríkin og NATO af því að þjóð eins og Ísland á allt undir því að eiga góða vini.