þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína ræðu og fyrst og fremst fyrir að taka þátt í þessari umræðu. Við í stjórnarandstöðunni höfum oft saknað þátttöku stjórnarliða í umræðum um hin ýmsu mál þannig að ég þakka fyrir það.
Ég heyrði hér í andsvörum áðan að hv. þingmaður átti í orðaskiptum við hv. þm. Guðlaug Þór Þórðarson. Mig langaði til að undirstrika að það sem hefur komið mér á óvart í undirbúningi þessa máls er að mér hefur fundist stjórnarliðar láta eins og allt það sem kemur Evrópusambandinu við sé eitthvað sem einungis sé hægt að komast að í þessum viðræðum. En einn angi málsins sem þarf ekkert að komast að og liggur algjörlega kýrskýr fyrir er Evrópurétturinn. Evrópurétturinn, svo að þar sé enginn misskilningur, er með mjög skýrt, yfirþjóðlegt vald með mjög umfangsmiklu valdaframsali, bæði löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvalds. Löggjafarvaldið er þá þannig að allt það sem gerist í Evrópu verður sjálfkrafa að lögum. Það er ekki okkar ákvörðun hér í þessum sal, það er sjálfkrafa löggjafarvald sem er til að mynda alls eðlisólíkt EES-réttinum. Mig langaði að nefna þetta.
Ég heyrði hv. þingmann tala um að ef ekki kæmi nógu góð niðurstaða úr þessum viðræðum í þágu landbúnaðarins myndi hún ekki samþykkja samninginn. Mig langar því að spyrja hv. þingmann hvort hún hafi ekki áhyggjur af því að í áliti meiri hlutans er slegið talsvert af samningskröfum gagnvart landbúnaðinum frá því sem var gert 2009. Það er mjög afgerandi að vægar er tekið til orða varðandi þær kröfur sem er ætlast til að ríkisstjórnin og samninganefnd hennar myndu fylgja, t.d. í þágu landbúnaðarins. Vegna orða hv. þingmanns þætti mér gott að fá viðbrögð hennar við því.