157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[15:50]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég skal glöð koma með betri útskýringar á orðum mínum. Í landbúnaðarmálunum slær meiri hlutinn t.d. af þeim kröfum sem gerðar voru í meirihlutaálitinu frá 2009. Þar sagði m.a. að mikilvægt væri að Ísland nýti sér og skoði eftir atvikum hvort nauðsyn beri til að útvíkka gildandi reglur ESB til að ná fram heimildum fyrir Ísland til að tryggja sem best stöðu íslenskra bænda. Sambærilega kröfu er ekki að finna í uppfærðum samningsmarkmiðum meiri hlutans nú. Þá er hvergi vikið að því markmiði að skilgreina allt Ísland sem svæði norðurslóðalandbúnaðar og sem harðbýlt svæði líkt og áður var gert. Þá er enn fremur lagt til í áliti meiri hlutans árið 2009 að sækjast eftir tímabundinni eða varanlegri undanþágu frá markaðseftirliti með innfluttum matvælum vegna landfræðilegra aðstæðna en það er ekki gert nú.

Eftir að hafa svarað hv. þingmanni langar mig að segja, af því að ég trúi því þegar hún segist vilja að þetta verði vel gert: Einhverra hluta vegna er engin krafa frá meiri hlutanum nú um að hinni litlu leiðsögn sem þó er að finna í meirihlutaálitinu verði fylgt. Það var gert 2009. Það er ekki gert núna. Núna er það algerlega opinn tékki sem á að senda til Brussel.