157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[15:52]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir andsvarið. Ég hef grun um að það skipti máli með hvaða gleraugum maður les álit meiri hluta utanríkismálanefndar af því að mér finnst markmiðin varðandi landbúnaðinn bara ansi sterk. Ég ætla ekki að fara að lesa þau hér upp af því að ég hef ekki nema mínútu. Samninganefnd er að fá hér, ef sagt verður já í lok sumars, mjög skýr skilaboð um hver samningsmarkmiðin eiga að vera. Hér er álit upp á tæpar 50 síður sem er þá leiðsögn til væntanlegrar samninganefndar ef svarið verður já í lok sumars. Eins og ég segi: Ef samningurinn verður ekki nógu góður þá ætla ég nú bara að skora á landsmenn að segja nei. En markmiðið hvað mig varðar er bara nokkuð skýrt og mér finnst meiri hluti utanríkismálanefndar hafa unnið málið mjög vel; sjálf sit ég ekki í henni. Mér finnst aðdáunarvert hverju þau hafa náð að áorka á svona stuttum tíma og ég tek hattinn ofan fyrir utanríkismálanefnd og þeirri vinnu sem hefur verið lögð í málið.