þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir hennar ágætu ræðu og fyrir að koma hingað og lýsa sínum skoðunum á málinu. Hún dregur ekkert endilega upp mynd af stöðu landbúnaðar í dag sem er ýkja björt þannig að maður kannski veltir því fyrir sér hvort það geti ekki verið að það séu til einhverjar aðrar leiðir. Hún nefnir hér t.d. áskoranir í tengslum við hækkandi verð á áburði og því langar mig að spyrja hv. þingmann hvort hún hafi kynnt sér þær aðgerðir sem Evrópusambandið hefur gripið til undanfarna mánuði til að stemma stigu við hækkandi verði á áburði til bænda í Evrópu.
Hv. þingmaður fór yfir að hún hefði áhyggjur af lýðræðinu vegna þess að að hennar mati hefðu forystumenn ríkisstjórnarinnar ekki talað með skýrum hætti um ESB-mál fyrir kosningar. Ég vil reyndar meina að ég og margir í mínum flokki höfum haldið mjög sterklega til haga okkar sjónarmiðum og það hafa fleiri gert þegar litið er til þeirra svara sem flokkarnir gáfu til skipulagðra hreyfinga. En þá langar mig að spyrja út í ein ummæli sem voru látin falla í maí 2013: Að sjálfsögðu kemur til þjóðaratkvæðagreiðslu en við tímasetningu hennar verður að meta aðstæður. Þessi orð eru frá þeim tíma þegar ríkisstjórn Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins, þá stýrð af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, núverandi formanni Miðflokksins, var að taka við völdum. Sú ríkisstjórn og þeir flokkar höfðu reyndar talað um þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-viðræður í aðdraganda þeirra kosninga og ekki bara í aðdraganda kosninganna sjálfra heldur líka eftir að ríkisstjórnin var mynduð. Þá var engin pressa á hv. þm. Sigmundi Davíð, þáverandi forsætisráðherra, en engu að síður segir hann að að sjálfsögðu komi til þjóðaratkvæðagreiðslu. Þannig að ég bara velti fyrir mér og spyr þingmanninn út í þessi ummæli: Var ekki (Forseti hringir.) augljóst að það var farið á svig við loforð sem voru gefin, ekki bara í kosningabaráttunni heldur líka eftir að ríkisstjórnin var mynduð?