þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Takk fyrir, hv. þingmaður. Þetta er ofboðslega góð spurning og ég held að ég geti svarað henni fyrir hönd allra bænda í landinu: Við erum að bíða eftir sleggjunni. Við erum að bíða eftir planinu. Efnahagurinn, efnahagslífið í landinu, er vissulega að sliga bændur en það er ekki bara það. Það er líka, eins og ég fór yfir í minni ræðu, að öll aðföng eru búin að hækka, plastið, áburðurinn, kjarnfóðrið. Allt er búið að hækka. Það eina sem er búið að minnka er hlutur ríkisins í stuðningsgreiðslum til bænda. Þar af leiðandi þurfum við að hoppa hærra og hlaupa hraðar hvern einasta dag. Og þegar við náum ekki áheyrn stjórnmálamanna hér heima um hversu alvarleg staðan er orðin hjá okkur, hvernig í ósköpunum eigum við þá að treysta því að einhver í Brussel ætli að hlusta á okkur?