þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni kærlega fyrir mjög góða og áhugaverða ræðu. Þegar við fáum tækifæri á Alþingi til þess að ræða við fólk sem hefur yfirgripsmikla þekkingu á íslenskum landbúnaði þá er afar freistandi að nota tækifærið og spyrja. Það sem ég hef verið að velta fyrir mér, virðulegur forseti, og hefur truflað mig verulega í umræðunni er þegar við fáum frá hagsmunasamtökum bænda, Bændasamtökum Íslands, ítrekaðar áskoranir, greiningar og hvatningu um að þetta hugnist ekki íslenskum bændum, það sé ekki íslenskum landbúnaði til framdráttar að ganga inn í Evrópusambandið, íslenskir bændur séu almennt á móti inngöngu, það verði til þess að tekjur bænda lækki, tollverndin verði tekin af, sem er risastór þáttur í náttúrlega varnar- og stuðningskerfi íslensks landbúnaðar — þetta muni hafa áhrif, eins og hv. þingmaður bendir réttilega á, á landbúnaðinn og þá sem í honum starfa. Væntanlega mun fækka búum, þau stækka og sjálfbærninni ógnað. Þetta er það sem Bændasamtök Íslands segja. Svo koma sérfræðingar sem segja: Nei, nei, þið þurfið ekki að hafa neinar áhyggjur af þessu. Þetta verður allt miklu betra fyrir íslenskan landbúnað og íslenskur landbúnaður verður miklu stöndugri og stöðugri. Það er svo mikið styrkjakerfi í Evrópu að við munum fá þetta allt margfalt til baka og íslenskur landbúnaður mun blómstra.
Nú er hv. þingmaður bóndi. Truflar þetta hv. þingmann á sama hátt (Forseti hringir.) og þann það sem hér stendur þegar rödd hagsmunasamtaka bænda er einhvern veginn (Forseti hringir.) töluð niður í umræðunni? Eigum við ekki að hlusta á hagsmunasamtökin og þá sem eru að berjast fyrir hagsmunum bænda?
(Forseti (EÁs): Forseti biður hv. þingmenn að virða ræðutímann.)