157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:18]
Horfa

Heiðbrá Ólafsdóttir (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir gott andsvar. Já, staðan er ekki góð hjá bændum á Íslandi og þessi vegferð sem við virðumst vera að fara inn í núna hræðir okkur. Það eru margir bændur sem eru að bíða af sér að fjárfesta t.d. af því að við vitum ekki hver staðan verður. Ég velti því bara fyrir mér, vegna þess að ég sé það ekki: Hvar í Evrópu er staða bænda góð? Hvar hafa bændur það bara gott? Hvar er ekki verið að kvarta? Og einmitt þetta, landbúnaður og byggðafesta helst í hendur. Það vill enginn verða síðasti bóndinn í dalnum. Ef við ætlum að fara að stækka búin hérna — ég veit það ekki, væri kannski nóg að vera bara með tvö, þrjú kúabú? Væri það nóg? Á þá restin að vera bara Benidorm norðursins, ekkert nema ferðaþjónusta? Er það landið sem við viljum búa í? Það er kannski einhverjum sem hugnast það, ég veit það ekki, en ekki fyrir mitt leyti. Ég vil styrkja fjölskyldubúin. Ég vil að hér sé blómlegur landbúnaður. Ég sé hann ekki vera það annars staðar, því miður, ekki nægilega. Hann er það vissulega í Noregi, hann er sterkur í Noregi vegna þess að stjórnvöld standa með landbúnaðinum þar og styrkja. Stjórnvöld þurfa að gera miklu betur hér en að vera að ræða og eyða tíma þingsins í ESB.