157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:20]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið og ég get tekið undir allt sem þar kom fram. Það sem ég var í raun og veru að fiska eftir í spurningu minni og vil ítreka það, er hvað hv. þingmanni finnst um það, eins og ég kom inn á áðan, þegar það er svo lítið gert úr áhyggjum Bændasamtaka Íslands af þessari vegferð. Menn tala einhvern veginn þann málflutning niður, eins og Bændasamtökin hafi ekki hugmynd um hvað þau eru að segja og viti ekki hvað þeim er fyrir bestu. En er staðreyndin ekki bara einfaldlega þessi, að bændur vita sjálfir hvað þeim er fyrir bestu?