þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir gott andsvar og biðst afsökunar á því að hafa óvart gleymt spurningunni. Það eru ákveðin verkfæri sem maður þarf að tileinka sér til að standa sig betur í þessu. Jú, það er mjög alvarlegt að það sé ekki verið að hlusta betur á Bændasamtökin og aðra aðila sem er annt um landbúnaðinn og eru sérfræðingar á því sviði. En einmitt í þeim efnum kemur það mér ekki á óvart, sér í lagi í ljósi þess að hér erum við að ræða eitt stærsta mál Íslandssögunnar, ESB, án þess að málið hafi verið sent í samráðsgátt. Það er enginn áhugi fyrir samráði. Ég held að það sé bara búið að taka ákvörðun um þetta og það sé verið að vinna að þessu. Hver verður staðan í íslenskum landbúnaði eftir þetta? Það er verið að tala um að við getum verið komin inn í ESB innan 17–24 mánaða. Erum við að fara að sjá bara einhver drög að áætlun um aðgerðir til að koma íslenskum landbúnaði inn í ESB (Forseti hringir.) eða eiga bændur von á búvörusamningi? Hvað eigum við að gera?