þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir fyrirtaksræðu. Hv. þingmaður er búinn að setja sig vel inn í þessi málefni, það fer ekki fram hjá neinum sem hér sitja eða á hlýða. Mig langar hins vegar á þessari mínútu sem ég hef að spyrja hv. þingmann um það, af því að hann var að tala um þessar varanlegu undanþágur sem væntanlega eru ekki í boði en einhvern veginn er verið að tosa þetta út og suður og halda því fram að við fáum ekki að vita um það fyrr en við getum kíkt í pakkann, að þá sjáum þetta allt saman: Hefði ekki verið einfaldara, vegna þess að hér hafa hæstv. ráðherrar komið og sagt að ef við fáum ekki varanlegar undanþágur verði ekki komið heim með samning, að senda fyrirspurn á Evrópusambandið áður en þessi umræða byrjaði, áður en þessi ákvörðun var tekin, og fá það á hreint hvort einhverjar varanlegar undanþágur væru í boði og ef þær væru ekki í boði að losa okkur undan þessari þjáningu hér í þessum sal?