þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir svarið. Og já, ég er sammála hv. þingmanni. Ég held að þetta snúist um pólitík. Ég held að ríkisstjórnin hafi óttast það svar sem hún hefði fengið frá Brussel, sem hefði að sjálfsögðu leitt til þess að þessari vegferð hefði aldrei verið ýtt úr vör. Mig langar hér í síðara andsvari að spyrja hv. þingmann út í þau ummæli hæstv. forsætisráðherra að hún muni ekki koma heim nema með góðan samning, sér í lagi vegna þess að það er á forræði hæstv. utanríkisráðherra að sjá um slíka samningsgerð og koma heim með slíkan samning, hvort það séu ekki mjög undarleg skilaboð. Talandi um lýðræði og þjóðarvilja, ef þjóðin segir já og sendir hæstv. utanríkisráðherra í víking til Brussel þá séu það síðan forsætisráðherra eða utanríkisráðherra sem einar ætla að taka ákvörðun um það hvort þær koma heim með samning til að leggja fyrir þjóðina eða ekki.