þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir seinni spurninguna. Ég veit ekki hvernig mér tókst að gleyma dagsetningunni sem ég hamraði á í ræðunni áðan. Hún var að sjálfsögðu 21., það er slétt ár síðan. Þetta er auðvitað með miklum ólíkindum, hv. þingmaður, því að aðalloforðið var að þjóðin myndi fá að taka afstöðu til samningsins. Næsta sem við heyrum er að hæstv. forsætisráðherra ætlar svo að ákveða hvort samningurinn sé þannig að þjóðin fái að taka afstöðu til hans, væntanlega af ótta við að hann kynni að verða felldur, þegar það er, eins og hv. þingmaður víkur að í spurningu sinni, hlutverk utanríkisráðherra að fara með þetta umboð. Þetta er því miður allt að verða komið í eina hringavitleysu.
Ég hefði haldið, ekki síst fyrir þá sem eru fylgjandi þessari vegferð og kannski helst fyrir þá, helst fyrir Viðreisn, að það hefði verið upplagt að taka sér ögn lengri tíma í að undirbúa þetta mál. Það er greinilegt að hér eru ráðherrar og þingmenn ekki allir að tala einni röddu.