157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:50]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir spurninguna, hún kemur mér ekkert á óvart. Ekki síst eftir yfirferð mína áðan þar sem ég var að vitna í ekki gömul ummæli, bæði frá hæstv. forsætisráðherra, sem voru mjög skýr og ítarleg, og frá hæstv. utanríkisráðherra frá svipuðum tíma, sem voru líka nokkuð skýr. Ég fléttaði svo aðeins inn í yfirferð mína svörum þriðja flokksins í þessari ríkisstjórn, Flokks fólksins, sem var algerlega skýr með það að hann styddi ekki þessa vegferð. Það var ekki bara að hann styddi ekki inngöngu í Evrópusambandið heldur svöruðu þau því til í kosningaprófi að flokkurinn styddi ekki þessa leið í atkvæðagreiðslu, að spyrja þjóðina með þessum hætti. Svar mitt við fyrirspurn hv. þm. Jens Garðars Helgasonar er því einfalt: Jú, þetta eru skýr merki um það, og þvert á áður gefin loforð, að hér sé verið að henda inn handklæðinu því að ekkert gengur í að uppfylla loforðin sem lágu til grundvallar því að þetta skref yrði tekið.