þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Þá langar mig að spyrja hv. þingmann að öðru. Það gætir ákveðins ósamræmis í málflutningi hæstv. utanríkisráðherra og síðan hv. formanns utanríkismálanefndar. Ég var núna með hv. þm. Pawel Bartoszek í Spursmálum þar sem hv. þingmaður sagði að aðildarviðræðurnar myndu taka þrjú til fjögur ár. Ekkert löngu seinna kemur formaður flokks hv. þingmanns, hæstv. utanríkisráðherra, og heldur því fram að hægt verði að klára þessar viðræður, þessar aðlögunarviðræður, á 12 til 18 mánuðum. Hér er mikill munur á. Eðlilega hefði maður talið að þetta myndi taka þrjú til fjögur ár, eins og hv. þm. Pawel Bartoszek segir. En það læðist að manni ákveðin ónotatilfinning þegar hæstv. utanríkisráðherra er búin að eiga í samskiptum við Evrópusambandið og það má ekki upplýsa þjóðina um hver þau samskipti eru. Þjóðin sem á að treysta til þess að taka upplýsta ákvörðun má samt ekki sjá hvað er búið að ræða um. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort þessi sama ónotatilfinning fyrir þessu máli læðist ekki að honum.