157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:54]
Horfa

Frsm. meiri hluta utanrmn. (Pawel Bartoszek) (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Til að byrja með vil ég segja: Mín reynsla er sú að ef margir eru ósáttir við eitthvað í manns framkomu þá hafi þeir stundum eitthvað til síns máls. Ég upplifi það að mörgum hafi þótt ég vera svona frekar hrjóstrugur í andsvörum hér áðan við hv. þm. Heiðbrá Ólafsdóttur og það er sjálfsagt að gangast við því. Ég á heldur ekkert erfitt með að biðjast velvirðingar þegar mér hleypur kapp í kinn og ég geri það hér með. En þá að spurningu til hv. þingmanns og mig langar að fá skýr svör, vegna þess að ég reyndi að fá skýr svör áðan í andsvari við hv. formann Sjálfstæðisflokksins, Guðrúnu Hafsteinsdóttur. Miðflokkurinn stendur með öðrum flokkum í stjórnarandstöðu að breytingartillögu við þetta mál þar sem lagðar eru til þrjár breytingar á efnisgrein tillögunnar: að þessu sé seinkað, að spurningin verði öðruvísi og að skerpt verði á samningsmarkmiðum. Mig langar einfaldlega að spyrja: Fari svo að þessi breytingartillaga verði samþykkt í heild sinni, mun Miðflokkurinn ýta á græna takkann þegar kemur að heildarafgreiðslu málsins?