157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:57]
Horfa

Frsm. meiri hluta utanrmn. (Pawel Bartoszek) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið. Ég spyr kannski einmitt út af þessari forsögu, bæði því að lofa þjóðaratkvæðagreiðslu og síðan þá að fara eftir niðurstöðum hennar ef til þess kemur. Ég þakka bara mjög hreinskilið svar. Það þýðir þá að með því að samþykkja þessa breytingartillögu værum við ekki að auka stuðning við málið innan þingsins, alla vega ekki hvað Miðflokkinn varðar. Það er þá bara skýrt og mjög gott, alla vega hvað hv. þingmann varðar, að það liggi þá alla vega skýrt fyrir. Takk fyrir það.

Þá langar mig að spyrja: Ég skil það sem svo að þingmaðurinn tali frekar fyrir sína hönd en flokksins alls. Fari síðan svo að þessi tillaga verði samþykkt með þessum breytingum, eða segjum það bara, og svo verður þjóðaratkvæðagreiðsla og ef það kemur já út úr þeirri þjóðaratkvæðagreiðslu, mun hv. þingmaður telja sig bundinn af niðurstöðu hennar eða er hann einfaldlega bundinn þeirri sannfæringu sinni að Ísland eigi ekki að ganga í Evrópusambandið og mun hann berjast fyrir þeirri skoðun sinni með öllum tiltækum ráðum óháð niðurstöðu ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu?