þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans ræðu. Honum var heitt í hamsi og það er gott þegar menn sýna tilfinningar og hafa sterkar skoðanir á málunum. Það dylst engum sem hefur hlustað á ræður hv. þingmanns í gegnum tíðina um ýmis mál tengd Evrópusambandinu að hann er algerlega mótfallinn því. Þegar við erum hér að fjalla um einhverjar lagabreytingar talar hann um salamíaðferðina og annað slíkt. En í þessu fyrra andsvari langar mig að spyrja hv. þingmann, af því að ég veit að hann hefur reynslu úr atvinnulífinu og víðar að: Þegar kemur að því að semja við einhvern um tiltekna hluti er þá gott að gefa sér það algjörlega fyrir fram að ekki náist góður samningur, er það skynsamleg leið? Ég veit ekki hvort við getum tekið eitthvert dæmi en segjum að verkalýðsfélag ætli að semja við samtök atvinnurekenda og þau samtök segi: Heyrðu, þetta er algerlega hámarkið sem við getum boðið upp á hér. Er þá ekki bara tilgangslaust að setjast að samningaborðinu í því tilfelli eða er það það ekki? Mig langar bara að spyrja hv. þingmann: Getum við ekki sest niður og gert þennan samning, komið með hann til landsins og samþykkt hann eða hafnað honum eftir því hvernig okkur líður með það?