þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Víði Reynissyni fyrir tiltölulega skýra og einfalda spurningu. Hann vék aðeins að því í aðdraganda, enda hafði hann til þess mínútu, einhvern veginn varð að fylla hana, að mér hefði orðið heitt í hamsi. Það var eðlilegt en ég veit ekki hvort hv. þingmaður var í salnum allan tímann og vissi af fyrri ræðum og orðaskiptum hér inni sem urðu til þess að ég breytti því algjörlega um hvað ég ætlaði að tala. En til að svara spurningunni, hv. þingmaður, þá er það alls ekki óalgengt, ekki heldur í dæminu sem hv. þingmaður tekur, þegar fyrirhugaðar eru samningaviðræður, að fyrst eru send út skýr skilaboð: Þetta eru kröfurnar og frá þeim verður ekki bakkað. Hvað varðar samninga á almennum vinnumarkaði er þetta bara algengara en ekki. Það er strax gefið upp hvert markmiðið með samningunum er. Síðan takast menn á um einhverjar útfærslur og eitthvað slíkt en markmiðin eru yfirleitt ljós fyrir fram.