157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[17:04]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Það blasir við þingheimi að taka ákvörðun fyrir hönd íslensku þjóðarinnar um hvaða stefnu við tökum fyrir Ísland. Ætlum við að velja leiðir áfram á grunni þess sem forfeður okkar byggðu upp með þrautseigju, fórnum og óbilandi trú á íslensku þjóðinni eða ætlum við inn í óvissuna, að leiða þjóðina inn í ríkjasamband þar sem ákvörðunarvald færist smám saman til yfirþjóðlegra stofnana sem hvorki þekkja sérstöðu okkar né lifa við þær aðstæður sem mótað hafa íslenskt samfélag frá landnámi? Við stöndum nú frammi fyrir slíkri úrslitastundu, hv. þingmenn.

Fyrir Alþingi liggur tillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Margir tala um þetta mál eins og hér sé aðeins um formsatriði að ræða, eins konar tæknilegt skref í löngu stjórnsýsluferli, en það er mikill misskilningur. Þetta mál snýst ekki fyrst og fremst um embættismenn, samningskafla eða fundargerðir. Þetta mál snýst um sjálfa þjóðina. Það snýst um það hvort við Íslendingar ætlum áfram að ráða eigin auðlindum, eigin lögum, eigin framtíð, eigin örlögum.

Virðulegur forseti. Íslandssagan er ekki saga stórveldis eða herveldis. Íslandssagan er saga fámennrar þjóðar sem lifði og lifir af nyrst við heimskautsbaug. Við höfum lifað af náttúruhamfarir, harðindi, eldgos, farsóttir og erlenda yfirstjórn. Við héldum tungunni lifandi meðan aðrar smáþjóðir hurfu inn í skugga stórra ríkja. Við héldum á lofti, varðveittum og ræktuðum bókmenntaarfinn, menningararfinn og allt það sem skilgreinir okkur sem Íslendinga. Það var ekki gert með því að fela öðrum vald yfir eigin málum. Það var gert með því að standa vörð um fullveldið. Þegar Jón Sigurðsson og sjálfstæðismenn 19. aldar börðust fyrir auknum réttindum Íslendinga voru þeir ekki að gera það vegna þess að þeir teldu Dani vonda þjóð. Þeir voru að gera það vegna þess að þeir skildu eitt grundvallaratriði, þ.e. að engin þjóð getur blómstrað til fulls nema hún ráði sjálf sínum örlögum. Þessi hugsjón varð síðan að veruleika með fullveldinu árið 1918 og þegar lýðveldið Ísland var stofnað á Þingvöllum árið 1944. Við skulum rifja það upp, virðulegur forseti, að lýðveldið var ekki stofnað á tímum friðar og hagsældar í heiminum. Það var stofnað á ófriðartímum. Heimurinn logaði í heimsstyrjöld. Óvissan var mikil. Margir hefðu getað sagt að þetta væri ekki rétti tíminn til að stíga þetta stóra skref en forfeður okkar skildu að sjálfstæði þjóðar er ekki gjörningur sem menn geyma til betri tíma. Sjálfstæði er forsenda hagsældar og framfara fyrir land og lýð um ókomna tíð.

Virðulegur forseti. Við eigum ekki að láta eins og aðild að Evrópusambandinu sé sambærileg við annað alþjóðlegt samstarf sem Ísland tekur þátt í. Það er hún ekki. Ísland er aðili að ótal fríverslunarsamningum í gegnum EFTA og við vorum fyrsta Evrópuríkið til að gera fríverslunarsamning við næststærsta efnahagsveldi heims, Kína. Ísland er þegar í víðtæku samstarfi við Evrópuríki. Við eigum aðild að EES-samningnum. Við störfum með Evrópuþjóðum á sviði viðskipta, vísinda og menningar- og öryggismála. Það samstarf hefur skilað okkur miklum ávinningi. En aðild að Evrópusambandinu er annars eðlis. Aðild felur í sér fullveldisframsal, framsal á því að við Íslendingar ráðum ferðinni. Aðild er ekki aðeins tímabundið samstarf heldur varanlegt valdaframsal frá Alþingi, íslenskum stjórnvöldum og íslenskum dómstólum til yfirþjóðlegra stofnana. Það er kjarninn í þessu máli. Það skiptir engu máli hversu fallega menn orða það. Það skiptir engu máli hversu oft er talað um samvinnu, samstöðu eða sameiginlega framtíð. Staðreyndin er einföld: Með aðild að Evrópusambandinu myndi Ísland ekki lengur hafa fullt og óskorað forræði yfir öllum sínum málum.

Föðurland vort hálft er hafið,

helgað þúsund feðra dáð.

Þangað lífsbjörg þjóðin sótti.

Þar mun verða stríðið háð.

Svo orti Jón Magnússon og rammar inn hversu mikilvægt hafið er, það hefur verið lífsbjörg þjóðarinnar. Sjávarútvegurinn er ekki aðeins atvinnugrein. Hann er samofinn sjálfsbjörg Íslendinga í árhundruð. Frá fyrstu árabátunum til nútímahátækniflotans hefur hafið verið lífæð þjóðarinnar. Í gegnum aldirnar sóttu erlend ríki á Íslandsmið. Við þurftum að berjast fyrir yfirráðum okkar yfir fiskimiðunum. Þorskastríðin voru ekki einhver táknræn deila um tæknileg atriði. Þau voru sjálfstæðisbarátta. Þar var stríðið háð. Íslensk þjóð stóð saman gegn stórveldi vegna þess að menn skildu að ef við misstum stjórn á auðlindunum myndum við smám saman missa efnahagslegt sjálfstæði okkar. Eigum við nú, aðeins fáeinum áratugum síðar, að ganga inn í kerfi þar sem yfirþjóðlegar stofnanir fá aukin áhrif á auðlindamál okkar? Þeir sem slíkt hugsa ættu að heyra í frændum okkar Írum og spyrja þá hvernig sjávarútvegsstefna ESB hefur reynst þeim. Eigum við að afhenda öðrum aukið vald í sjávarútvegi, orkumálum og landbúnaði? Fyrir Íslendinga ætti svarið að vera augljóst.

Virðulegur forseti. Það vekur líka sérstaka athygli hvernig staðið hefur verið að þessu máli. Hvers vegna þessi asi, hvers vegna þessi ótrúlegi hraði, hvers vegna á að halda þjóðaratkvæðagreiðslu á skemmsta mögulega fresti? Þegar mál snerta sjálfa stjórnskipan landsins og framtíð fullveldisins ætti fyrsta regla lýðræðisins að vera vönduð málsmeðferð. En hvað horfum við upp á? Tillögu sem virðist lögð fram án eðlilegs samráðs við almenning, stofnanir eða hagsmunaaðila; litla tilraun til að útskýra kostnað, tímalínu eða raunverulegar afleiðingar; óljósar yfirlýsingar um að tíminn sé hentugur eða að opinn gluggi sé til staðar í Evrópu?

Virðulegur forseti. Alþingi sem ber virðingu fyrir þjóðinni tekur ekki slíkar ákvarðanir í flýti. Alþingi sem ber virðingu fyrir lýðræðinu tryggir að almenningur fái allar upplýsingar áður en gengið er til atkvæða. Það er ekki nóg að segja fólki að það sé aðeins verið að kjósa um framhald viðræðna. Viðræðurnar sjálfar eru pólitísk yfirlýsing. Engin þjóð fer í margra ára aðildarviðræður nema vegna þess að stjórnvöld telja að aðild sé raunverulegt markmið. Við eigum ekki að blekkja þjóðina með orðalagi sem gefur til kynna að hér sé aðeins verið að kíkja í pakkann eða fá að vita meira, og svo er nýjasta slagorðið: Segjum já við tækifærum.

Virðulegur forseti. Við skulum líka muna að viðræðunum lauk í raun fyrir rúmum áratug. Það er ekki hægt að láta eins og einhverjir samningafundir hafi aðeins verið settir á bið. Verkefnið fjaraði út, samninganefndir voru lagðar niður. Íslensk stjórnvöld lýstu því yfir að ekki stæði til að halda áfram. Því er rangt að tala um einfalt framhald. Ef Ísland færi aftur inn í slíkt ferli væri það ný pólitísk ákvörðun með nýjum skuldbindingum og nýjum afleiðingum. Þá vaknar önnur stór spurning: Hver eru samningsmarkmiðin? Hvaða hagsmuni ætlar ríkisstjórnin að verja, hvaða línu ætlar hún að draga í sandinn, línu sem verður aldrei farið yfir? Hvaða vald ætlar hún aldrei að framselja? Íslendingar eiga rétt á skýrum svörum áður en þeir ganga að kjörborðinu.

Virðulegur forseti. Það er einnig sérstakt áhyggjuefni að í allri umræðunni hefur nánast ekkert verið rætt um stjórnarskrána, einmitt þá sömu stjórnarskrá sem við hv. þingmenn sverjum drengskapareið að, um að standa vörð um hana og verja. Allir sem þekkja til þessara mála vita að aðild að Evrópusambandinu myndi kalla á stjórnarskrárbreytingu. Þetta er ekki smáatriði. Þetta er eitt stærsta stjórnskipulega álitaefni sem íslenska lýðveldið getur staðið frammi fyrir, breytingar sem gætu haft áhrif á sjálfa valdskipan ríkisins, löggjafarvald, fullveldi og framsal ríkisvalds. Slík mál eiga ekki að vera neðanmálsgrein í pólitískri herferð ríkisstjórnarinnar. Þau eru þungamiðja umræðunnar.

Virðulegur forseti. Þegar smáþjóðir tapa sjálfsforræði sínu gerist það sjaldnast með einni dramatískri ákvörðun. Það gerist hægt, skref fyrir skref, með lagaflækjum, með reglugerðum, með því að sífellt fleiri ákvarðanir færast frá þjóðkjörnum fulltrúum yfir til kerfa sem almenningur hefur takmörkuð sem engin áhrif á, Á endanum vaknar fólk upp við þann veruleika að stór hluti lagasetningar kemur annars staðar frá. Íslendingar verða að spyrja sig: Er það sú framtíðarsýn sem við höfum fyrir lýðveldið, fyrir Ísland? Viljum við að framtíð íslensks samfélags ráðist í auknum mæli af pólitískum og lagalegum ákvörðunum sem teknar eru langt frá Íslandsströndum? Viljum við að sérstaða okkar verði smám saman undirorpin sífellt meiri samræmingu við erlend stjórnvöld? Fyrir Íslendinga ætti svarið að vera skýrt.

Virðulegur forseti. Það þýðir ekki að við eigum að loka okkur af, þvert á móti. Ísland á að vera opið samfélag. Við eigum að eiga náið samstarf við nágrannaþjóðir okkar. Við eigum að stunda frjáls viðskipti, taka þátt í alþjóðasamvinnu og vera virkur þátttakandi í samfélagi vestrænna lýðræðisríkja. Þar hefur Sjálfstæðisflokkurinn verið í fararbroddi í áratugi. En það er grundvallarmunur á samstarfi fullvalda ríkja annars vegar og yfirþjóðlegu valdi hins vegar. Við getum átt samstarf án þess að afsala okkur sjálfsforræðinu. Við getum verið alþjóðlega sinnuð án þess að fórna fullveldinu.

Virðulegur forseti. Ég óttast stundum að það sé talað niður til þjóðarinnar í þessari umræðu eins og andstaðan við aðild að Evrópusambandinu sé merki um einangrunarhyggju eða ótta við umheiminn. Það er ekkert fjarri sannleikanum. Ást á eigin þjóð, ættjörðinni, er ekki andstaða við aðrar þjóðir. Virðing fyrir fullveldi Íslands er ekki fjandskapur við Evrópu. Þvert á móti byggist heilbrigt alþjóðasamstarf á því að þjóðir komi að borðinu sem jafningjar með skýra sjálfsmynd og skýrt umboð frá eigin þjóðþingum.

Virðulegur forseti. Saga Íslands kennir okkur að smæð er ekki veikleiki heldur styrkur. Við höfum staðið með storminn í fangið þegar stórveldi vildu annað. Við stóðum vörð um íslenska tungu. Við stóðum vörð um landhelgina. Við stofnuðum lýðveldi þegar margir töldu það óráðlegt. Og við höfum sýnt aftur og aftur að íslensk þjóð getur tekið sjálfstæðar ákvarðanir og borið ábyrgð á eigin framtíð, ekki vegna fortíðardýrkunar heldur vegna framtíðarinnar því að fullveldi er ekki minnisvarði um liðna tíð. Fullveldi er lifandi réttur komandi kynslóða til að ráða eigin landi, eigin örlögum.

Virðulegur forseti. Við eigum því að nálgast þetta mál af yfirvegun og ábyrgð. Við eigum að hafna öllum tilraunum til að halda upplýsingum frá þjóðinni. Við eigum að krefjast skýrra svara um kostnað, stjórnarskrárbreytingar, samningsmarkmið og áhrif á auðlindir þjóðarinnar. Og umfram allt eigum við að muna að þegar fullveldi þjóðarinnar er annars vegar er ekki nóg að spyrja hvað hentar einum smáflokki á Íslandi í pólitískum hrossakaupum í núverandi ríkisstjórn. Hvaða Ísland viljum við skilja eftir handa börnunum okkar? Sjálfstætt Ísland sem ræður eigin málum eða Ísland sem hefur smám saman glatað hluta af ákvörðunarvaldi sínu, fullveldi, til yfirþjóðlegs valds?

Virðulegur forseti. Ég trúi því að íslenska þjóðin sé enn sama þjóðin og stóð á Þingvöllum árið 1944, þjóð sem skilur gildi frelsis. Þjóð sem skilur að sjálfstæði kostar ábyrgð og þjóð sem veit að auðveldasta leiðin er ekki alltaf sú rétta. Þess vegna tel ég að við eigum að standa vörð um fullveldið, varðveita sjálfstæði Íslands, stjórnarskrána og hafna þeirri leið sem felur í sér sífellt meira valdaframsal frá íslensku þjóðinni til erlends yfirvalds. Það er ekki aðeins pólitísk afstaða, það er skylda við ættjörðina og skylda við komandi kynslóðir Íslendinga. Því eins og segir í ljóði skáldkonunnar Huldu:

Hver dagur liti dáð á ný,

hver draumur rætist verkum í

svo verði Íslands ástkær byggð

ei öðrum þjóðum háð.

Svo aldrei framar Íslands byggð

sé öðrum þjóðum háð.