þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir afbragðsræðu og einstaklega góðan flutning hér í þingsal, öðrum þingmönnum til eftirbreytni. En í þessu andsvari mínu langar mig hins vegar að spyrja hv. þingmann aðeins út í upplýsingar. Það er nú þannig, virðulegur forseti, að það eru ekki bara 63 þingmenn sem eru að fara að taka ákvörðun í þessu máli, það er þjóðin. Það er þjóðarviljinn sem mun skera úr um það hvort við göngum til samtals við Evrópusambandið eða höldum áfram þeirri vegferð sem mér og hv. þingmanni hugnast betur, þ.e. að halda í sjálfstæði þjóðarinnar og fullveldi. Ég spyr hvort hv. þingmanni finnist það ekki undarlegt að óskað sé eftir gögnum í þessu máli af hv. utanríkismálanefnd og það séu einungis þeir þingmenn sem sitja í utanríkismálanefnd sem hafi aðgang að þeim. Við hinir sem ekki erum þess heiðurs aðnjótandi að vera í hv. utanríkismálanefnd höfum ekki aðgang að þessum gögnum. Við erum að fara að taka ákvörðun um hvort við eigum að setja málið í þjóðaratkvæðagreiðslu en það er þjóðin sem á síðan að hafa lokaorðið. Er ekki eðlilegt í ljósi þess að hæstv. ríkisstjórn og hennar meðreiðarsveinar hafa talað hátt og mikið um að það þurfi að vera gegnsæi og að allt þurfi að vera uppi á borðum — af hverju eru þá ekki öll gögn uppi á borðunum, virðulegur forseti? Af hverju eru þessi gögn ekki sýnd þjóðinni? Er það ekki eðlileg krafa okkar og þjóðarinnar að við fáum að sjá þau gögn sem liggja á bak við í þessu máli?