157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[17:21]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir hans spurningu. Hæstv. ríkisstjórn er svolítið eins og presturinn, hún vísar veginn en fer hann ekki sjálf. Það er svolítið eins og ríkisstjórnin er að gera núna. Hún talar um að treysta þjóðinni en síðan eru hér í einhverju lokuðu herbergi lokuð gögn sem einungis hv. þingmenn sem sitja í utanríkismálanefnd mega skoða en þeir mega ekki upplýsa hvað í þeim er. Er þetta að treysta þjóðinni? Ég fæ líka ákveðna ónotatilfinningu þegar svona gögn liggja fyrir sem á ekki að upplýsa um og eru í lokuðu herbergi. Eins og ég nefndi hér áðan í andsvari við hv. þm. Þorgrím Sigmundsson sagði hv. þm. Pawel Bartoszek, formaður utanríkismálanefndar, að það myndi taka 3–4 ár að semja. Hæstv. utanríkisráðherra talar um 12–18 mánuði skömmu eftir að hv. formaður utanríkismálanefndar var búinn að segja 3–4 ár. Hvað er í þessum gögnum? Hvaða upplýsingar eru þarna? Hvaða samtöl eða hvað annað er búið að eiga sér stað? Ég spyr. Það er bara ákveðinn ómöguleiki í því að ætla þjóðinni að ganga að kjörborðinu, taka þessa afdrifaríku ákvörðun sem snýr að fullveldi þjóðarinnar, fullveldisframsali, á sama tíma og gögnum og upplýsingum er haldið frá þjóðinni, ekki bara þingheimi heldur þjóðinni sem hæstv. ríkisstjórn talar svo mikið um að hún treysti svo vel.