157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[17:25]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég held að það sé ágætt, áður en við förum að tala um hvað getur gerst, að nefna að íslensk sjávarútvegsfyrirtæki eru upp til hópa smáfyrirtæki ef við horfum á evrópskan sjávarútveg, smáfyrirtæki. Ég held að í fyrsta lagi myndi eignarhaldið fara að breytast. Útlendingar gætu keypt hér hlut í fyrirtækjum eða keypt þau alveg upp, Spánverjar, Pólverjar eða Hollendingar. Eignarhaldið myndi breytast. Við hefðum þá ekki þau yfirráð sem við höfum núna yfir okkar stofnum. Við sjáum bara stöðuna sem Írar eru í. Írar eru með flotann sinn bundinn við land og horfa á Hollendinga, Spánverja og Pólverja veiða írskan makríl út af ströndum Írlands. Við erum bara með það í beinni núna hvað getur gerst ef við göngum í Evrópusambandið, það sem snýr að sjávarútveginum.