157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[17:26]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir sína ágætu ræðu. Ég vil kannski byrja á að bregðast við því sem kom fram undir lokin í svari hv. þingmanns við seinasta andsvari varðandi sjávarútveg og Írland. Undanþágan sem Írar sömdu um og rann síðan út var ekki hluti af aðildarsamningi Írlands sem er akkúrat það sem fjallað er um í nefndaráliti, þ.e. að mögulegar undanþágur Íslands í sjávarútvegi yrðu hluti af aðildarsamningi. Það er stiklað á því í nefndaráliti að það sé samningsmarkmið. En að öðru sem var spurning mín. Ræða hv. þingmanns minnti mig að miklu leyti á ræðuna sem hann flutti hér í 1. umræðu. Þá fékk hann spurningu sem ég ætla að endurtaka því að ég er með gullfiskaminni og man ekki hvert svar hv. þingmanns var. Auðvitað get ég flett því upp á þingvefnum en ég ætla bara að endurtaka spurninguna þó kannski í örlítið breyttu formi: Er Svíþjóð sjálfstætt og fullvalda ríki?