157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[17:27]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Ingvari Þóroddssyni fyrir þessa spurningu. Ég hef gaman af því að hann og hv. þm. Pawel Bartoszek koma upp með svona spurningar af því að Svíar hafa framselt hluta af fullveldi sínu. Utanríkisráðherra Evrópusambandsins mætir og semur fyrir hönd Svíþjóðar. Svíar eru búnir að framselja hluta af fullveldi sínu. Þeir eru ekki eins fullvalda ríki og Ísland er í þeim skilningi. Þeir eru búnir að framselja ákveðið vald til yfirþjóðlegs valds. En þeir hafa ekki tekið upp evruna sem hér er sungið um að eigi að vera hin eina stóra lausn á öllum vandræðunum sem hæstv. ríkisstjórn er búin að koma okkur í, íslensku þjóðinni. Nú er lausnin evran en Svíþjóð er ekki þar. Danmörk er ekki þar heldur. Það er mikil andstaða við það að taka upp evruna í Svíþjóð. Síðustu kannanir hafa sýnt að það er andstaða við það hjá almenningi. Ég hef gaman af þessum spurningum en svarið er: Já, Svíþjóð hefur framselt hluta af sínu fullveldi alveg eins og við munum þurfa að gera. Það er bara þannig.