þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir fína ræðu, alveg prýðilega ræðu. En mig langar að fara aftur inn í það sem ég gerði í ræðu minni áðan og fá svo mat hv. þingmanns á spurningu í framhaldinu. Fyrir nákvæmlega ári svaraði Marta Kos spurningu um það hvað felist í slíku aðildar- og aðlögunarferli og var tiltölulega skýr — ekki tiltölulega skýr heldur afar skýr — í svörum sínum. Einnig var spurt um tímarammann. Þar kemur fram að þetta snúist að miklu leyti um að aðlaga löggjöf umsóknarríkisins að löggjöf Evrópusambandsins eins og við þekkjum þó að hluti þingmanna sé þeirrar skoðunar að það sé hægt að velja eitthvað úr þessu. En hún segir líka, sem er dálítið merkileg yfirlýsing, þegar hún er spurð hversu hratt viðræður geti gengið fyrir sig, með leyfi forseta:
„Hversu hratt viðræður ganga fyrir sig fer eftir því hversu fljótt hvert ríki kemur á umbótum og aðlagast regluverki sambandsins. Markmið viðræðnanna er að umsóknarríkið taki upp regluverkið eins og það leggur sig.“
Þá þykir mér eðlilegt að spyrja hv. þingmann í framhaldinu: Ef já verður niðurstaðan úr þjóðaratkvæðagreiðslunni í lok ágúst, hvert er þá umboðið? Ég átta mig ekki alveg á því. Stækkunarráðherra Evrópusambandsins er búinn að svara þessu skýrt. Það þarf að aðlaga sig í einu og öllu. Nú kemur hv. þingmaður úr viðskiptalífinu og m.a. útflutningi á ferskvöru — um hvað snýst þetta umboð? (Forseti hringir.) Um hvað á að fara að semja við aðila sem er búinn að segja fyrir fram: Samningurinn verður svona, þú annaðhvort gengst við honum eða gengur í burtu?