þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Mér er eiginlega jafn mikil spurn og hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni. Það eru engar undanþágur. Nú seinast var Evrópusambandið að segja við Breta að þeir myndu ekki fá neinar undanþágur ef þeir myndu sækja um aftur. Bretar, sem eru ansi mikið stærra og mikilvægara efnahagsríki en við, fá engar undanþágur. Ég get bara nefnt að fyrir tveimur eða þremur mánuðum var viðtal við Heather Grabbe, sem er sérfræðingur í þessu, og hún sagði að við myndum ekki fá neinar undanþágur. Ég veit ekki hve margir sérfræðingar þurfa að koma og segja að það séu engar undanþágur. Og það er alveg ótrúlegt að spurningin sé ekki bara: Viltu ganga í Evrópusambandið, já eða nei? Af því að við vitum nákvæmlega hvað er í þessum pakka. Það er bara þannig.
Ég segi bara eins og hv. þingmaður: Ég skil hvorki upp né niður í þessari vegferð þegar allir sérfræðingar í Evrópu líta svo á og segja það hreint út að það séu engar undanþágur. En hér er verið að spyrja: Viljum við ekki vita meira? Eigum við ekki að kíkja í pakkann? Og svo kemur bara betra veður og lægri vextir í kjölfarið á evrunni. Þetta er ótrúlegur málflutningur. Það er ótrúlegt að við séum að eyða tíma þingsins í þetta núna þegar við ættum að vera að reyna að ávarpa efnahagsástandið í landinu.