157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[17:37]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það kemur í rauninni ekkert á óvart. Auðvitað vissum við að í stjórnarsáttmálanum kemur fram að það eigi að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu, reyndar 2027, það var talað um 2027. En það liggur alveg ljóst fyrir að það var hlaupið í þetta mál. Og af hverju var það gert, virðulegur forseti? Jú, þetta eru pólitísk hrossakaup. Hér var búið að keyra í gegnum þingið alls kyns mál fyrir Flokk fólksins. Efnahagsmálin eru komin í þrot. Þá er ákveðið að reyna að beina kastljósinu annað, láta Viðreisn fá þetta eina mál sem sá flokkur byggist á, þ.e. aðild að Evrópusambandinu. Láta keyra það í gegn og reyna að beina athyglinni frá vandanum. En þú beinir athygli íslensku þjóðarinnar ekkert frá vandanum í efnahagsmálunum af því að hann blasir við fólki um hver mánaðamót þegar það þarf að borga reikningana, þegar það þarf að borga af húsnæðinu, þegar það þarf að reka bílinn. Það blasir við þjóðinni (Forseti hringir.) í hvert skipti sem rukkun kemur fyrir kílómetragjaldið í hvaða þrot þessi hæstv. ríkisstjórn er komin.