þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Við ræðum hér mjög stórt mál og ég átti orðaskipti við hv. formann utanríkismálanefndar í útvarpinu áður en þessi umræða hófst og hann tilkynnti þjóðinni að stjórnarliðar kæmu hér með kassann úti til að ræða þetta mál. Það hefur augljóslega ekki staðist og þetta mál sem hv. stjórnarliðar segja að þeir séu svo stoltir af, það verður bara að segjast eins og er að þeir fáu stjórnarliðar sem hafa tekið þátt í umræðunni hafa verið ansi lúpulegir. Ég hef fengið nokkrar spurningar um það hvar hæstv. forsætisráðherra sé og hæstv. utanríkisráðherra en þeir hafa ekki sést í þessari umræðu. Málin verða ekki stærri en þessi og þegar ég hef þessa ræðu þá sést ekki í neinn stjórnarliða í þingsal. Málið hefur eðlilega kallað fram tortryggni vegna þess, eins og kom fram í orðaskiptum hv. þingmanna hér á undan, að það sáust fyrst fréttir af þessu máli í Brussel, þær láku í blöð í Brussel um það að við Íslendingar eða stjórnvöld ætluðu að fara í þessa vegferð núna á þessu ári en eins og við munum var lagt mikið upp úr því að þetta yrði í síðasta lagi 2027 og flestir töldu að svo væri miðað við það sem hæstv. ráðherrar sögðu.
Það hefur líka komið í ljós, eftir að kallað hefur verið eftir gögnum um samskipti ráðherra ríkisstjórnarinnar og forystumanna ESB, að það hafa verið mikil samskipti frá fyrsta degi þar sem þessar fyrirætlanir hafa verið kynntar. Vekur það athygli að það kom ekki fram í þessum gögnum að það hafi verið um það að ræða að hæstv. ráðherrar hafi verið að leggja áherslu á okkar hagsmunamál, eins og t.d. það að Evrópusambandið í fyrsta skipti í sögu samningsins um Evrópska efnahagssvæðið braut samninginn og setti á okkur refsitolla. Það kemur ekki fram í gögnum að hæstv. ráðherrar hafi verið að beita sér í þeim málum, heldur fyrst og fremst í því að Ísland komist inn í Evrópusambandið.
Þegar málið kemur fram er það ekki sett í samráðsgátt. Kynningin fer þannig fram að ríkisstjórnin útdeildi án þess að auglýsa eftir styrkjunum, fór þar af leiðandi á skjön við lög um opinber fjármál en deildi þeim á milli tveggja samtaka, önnur samtökin eru innvígð og innmúruð inn í í það minnsta Viðreisn og Samfylkinguna. Hins vegar sjáum við það nú mjög skýrt að þegar forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, Ursula von der Leyen, kemur hér — ég verð að viðurkenna að mér fannst mjög gott að hún skyldi koma hingað en ég hélt að hún kæmi til þess að fullvissa okkur um að Evrópusambandið ætlaði ekki að brjóta á okkur. En hún kom fyrst og fremst til þess að koma með þá túlkun að aðildarumsóknin sem Evrópusambandið sjálft var búið að segja að væri ekki í gildi — það væri komin ný túlkun frá Evrópusambandinu eftir að þessi ESB-ríkisstjórn kom hér, sú túlkun að þetta væri enn í gildi og við værum að halda áfram einhverju. Ég vek athygli á því, af því að litlar fréttir hafa farið af því, að það var að vísu ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur sem hætti viðræðunum. Sá ráðherra sem við getum sagt að hafi lokað því, fyrrverandi hæstv. ráðherra, Gunnar Bragi Sveinsson, er með lögmann, virðulegi forseti, til að reyna að fá þau gögn sem hann fékk í aðdraganda þeirrar ákvörðunar sem sú ríkisstjórn tók. Hann er með lögmann. Við höfum ekki fengið þessi gögn. Við höfum fengið gögn sem hafa hentað ríkisstjórninni en þessi gögn hafa ekki fengist og öll þau gögn sem kallað hefur verið eftir hefur þurft að toga út með töngum. Ég hef oft notað það, virðulegi forseti, sem skýrasta dæmið um þá túlkun Evrópusambandsins að við værum ekki aðilar eða með umsókn í gildi, að það var ekki á vef Evrópusambandsins. Ísland hefur ekki verið þar í tíu ár rúmlega sem aðildarríki en meira að segja Tyrkland er þar. Ég sagði: Sú umsókn er löngu dauð. Svo komst ég að því, ekki af því að við höfum fengið þau gögn, að IPA-styrkirnir, aðlögunarstyrkirnir, eru enn þá í gildi fyrir Tyrkland og hafa verið síðustu áratugi, þ.e. þeir eru að fá styrki til að aðlaga sig að Evrópusambandinu. Af hverju nefni ég þetta? Vegna þess að Evrópusambandið stöðvaði það að Ísland fengi aðlögunarstyrki þegar bréfið fræga fór.
Ég ætla ekki að eyða löngum tíma í þetta en það grefur undan trúverðugleika að sjá vinnubrögðin í þessu máli. Það grefur undan trúverðugleika að fyrrverandi ráðherra fái ekki gögn og þurfi að beita lögmanni til að reyna að ná í þau því þau gögn hljóta að eiga erindi til þings og þjóðar núna þegar við ræðum þetta mál. En ef þetta er allt saman í gildi, virðulegi forseti, þ.e. umsóknin, af hverju hefur ríkisstjórnin ekki lagt á borðið þau gögn sem menn voru að vinna með og niðurstaða var komin í í síðustu aðildarumsókn? Væri ekki eðlilegasta mál í heimi og væri það ekki eitthvað sem ríkisstjórnin ætti að beita sér fyrir, þ.e. að koma með þau gögn? Þau segja að aðildarumsóknin sé í gildi og eðlilegasta mál í heimi væri að segja: Heyrðu, við vorum komin þetta og þetta langt, hér eru þessi gögn. En það er ekki gert. Það hefur þurft að toga þetta allt saman út með töngum og ekki er allt komið. Ég vek athygli á því að ef sú túlkun er í gangi hjá ríkisstjórn Íslands og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins að aðildarumsóknin sé í gildi þá hlýtur allt sem henni fylgir að vera það líka.
Ég vil lesa upp úr, virðulegi forseti, almennri afstöðu ESB. Þetta er ráðherrafundur ríkjaráðstefnu sem opnuðu viðræðurnar um aðild Íslands að Evrópusambandinu í Brussel þann 27. júlí 2010. Þar segir á bls. 5, með leyfi forseta:
„Aðild felur í sér viðurkenningu á réttindum og skuldbindingum sem fylgja kerfi Evrópusambandsins og stofnanaramma þess, sem er kallað „regluverk“ Evrópusambandsins. Ísland verður að beita því eins og það er þegar til aðildar kemur. Auk lagasamræmingar felur aðild í sér að regluverkinu er hrundið í framkvæmd í tæka tíð og með skilvirkum hætti. Regluverkið er í stöðugri þróun og felur m.a. í sér:
efni, meginreglur, gildi og pólitísk markmið sáttmálanna sem Evrópusambandið byggir á,
gerðir sem stofnanirnar hafa samþykkt samkvæmt sáttmálunum, sem og dómaframkvæmd dómstóls Evrópusambandsins,
allar aðrar gerðir, hvort sem þær eru bindandi eða ekki, sem eru samþykktar innan ramma Evrópusambandsins, s.s. samstarfssamninga milli stofnana, ályktanir, yfirlýsingar, tilmæli, leiðbeiningar.“
Svo er vísað í alþjóðasamninga sem gilda og farið yfir það að Ísland verði að leggja fram þýðingu á regluverkinu á íslensku.
Á bls. 6 segir, með leyfi forseta:
„Sambandið getur fallist á beiðnir frá Íslandi um aðlögunarráðstafanir að því tilskildu að þær séu takmarkaðar í tíma og að umfangi, sem og að þeim fylgi áætlun þar sem áfangar vegna beitingar regluverksins eru skilmerkilega skilgreindir.“
Á öðrum stað segir:
„Aðlögunarfyrirkomulag má aldrei fela í sér breytingar á reglum eða stefnumiðum Evrópusambandsins, trufla eðlilega starfsemi eða leiða til verulegrar röskunar á samkeppni.“
Virðulegi forseti. Þetta eru gögnin sem er ekki haldið að þingi og þjóð. Það sem er áhugavert líka, virðulegi forseti, því nú er ég búinn að spyrja stjórnarliða, og ég bara fagna því að þeir komi hér í umræðuna, þessarar einföldu spurningar: Finnst ykkur ekkert óþægilegt að við séum að framselja löggjafarvald, framkvæmdavald og dómsvald? Og það verður að segjast eins og er að margir hv. þingmenn stjórnarliðsins verða bara hissa að fá þessa spurningu og svara jafnvel að þeir ætli eitthvað að semja um þetta. Utanríkisráðherra að vísu lét að því liggja á opnum fundi að þetta væri eitthvað umsemjanlegt en forsætisráðherra leiðrétti utanríkisráðherra síðan á næsta fundi, enda getur utanríkisráðherra ekki frekar en nokkur annar staðið á því. En um það snýst málið, að við erum að færa völd sem við höfum og erum búin að ávinna okkur um áratuga og árhundruða skeið til Brussel. Á sama hátt erum við að borga með okkur fjármuni sem skattgreiðendur eiga yfir til Evrópusambandsins. Þetta er svona í stuttu máli.
Annað sem er, virðulegi forseti, er að hér hafa menn komið og fullyrt það, jafnvel formaður utanríkismálanefndar, að við séum að taka upp 75% af gerðum Evrópusambandsins. Af hverju nefni ég gerðir? Vegna þess að það er það hugtak sem menn nota þegar menn tala um regluverk Evrópusambandsins. Það skiptist í reglugerð, tilskipun og ákvörðun og stundum í talmáli er þetta kallað ESB-lög. En þetta er það sem fólk þarf að hlíta sem býr í löndum innan ESB. Í skýrslu utanríkisráðuneytisins sem var gerð á sínum tíma og heitir Gengið til góðs er á bls. 10 farið yfir kafla sem heitir Hlutfall ESB-gerða í EES-samningnum. Þar segir, með leyfi forseta:
„Fjöldi gerða sem teknar eru upp í EES-samninginn á hverju ári er tiltölulega lágt hlutfall af heildarfjölda þeirra gerða sem ESB samþykkir. Þróunin hefur verið sú síðustu árin að ESB samþykkir heldur færri gerðir á þeim sviðum sem falla utan EES, sérstaklega hvað varðar landbúnaðarstefnu sambandsins. Á hinn bóginn hefur ESB aukið setningu gerða á þeim sviðum sem varða t.d. matvælaheilbrigði og tæknilegar reglugerðir varðandi vöruviðskipti á innri markaðnum.“
Þetta gerir það að verkum að hlutfallið hefur verið nokkuð hækkað. Þetta er eitthvað sem kemur frá EFTA-skrifstofunni. En nú koma menn hér, virðulegi forseti, og fullyrða það að við tökum upp 75% af gerðunum því það er ekki til neitt sem heitir ESB-lög, það er nokkuð sem menn nota bara í talmáli. Menn hika ekki við að halda þessu fram þrátt fyrir að allir viti betur. Ég vísaði hér í aðlögun vegna þess að hæstv. ráðherrar og nú var að koma svar frá hæstv. utanríkisráðherra til hv. þm. Hildar Sverrisdóttur þar sem það er mjög loðið hvort við þurfum að fara í aðlögun. Ég var að lesa hér beint upp úr ráðherrafundi ríkjaráðstefnu sem opnuðu viðræðurnar um aðild Íslands að Evrópusambandinu 27. júlí 2010 og ég er hér líka með, virðulegi forseti, þingsályktunartillögu sem var lögð fram á löggjafarþinginu 2011–2012 og var samþykkt af hálfu hæstv. þáverandi utanríkisráðherra, Össurar Skarphéðinssonar. Hér er rammasamningur milli ríkisstjórnar Íslands og framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um reglur um samstarf er varðar fjárhagsaðstoð ESB við Ísland innan ramma stuðningsaðgerða sjóðs er fjármagnar aðstoð við umsóknarríki ESB (IPA). Ég er með þennan samning hérna og það geta allir farið á netið og skoðað hann. Hann hlýtur að vera í gildi eins og aðildarumsóknin. Við fengum þúsundir milljóna úr þessum sjóði og það segir bara skýrt út á hvað þetta gengur, segir t.d. á bls. 9: „Aðstoð skal vera í samræmi við stefnumið ESB og stuðla að samræmingu við réttarreglur ESB.“ Til þess er leikurinn gerður.
Virðulegi forseti. Við erum samt sem áður með ríkisstjórn sem er á einhverjum hlaupum frá þessum staðreyndum. Við erum með hv. stjórnarþingmenn sem taka ekki þátt í umræðunni og ég er ánægður að sjá hér tvo stjórnarþingmenn. Ég bíð spenntur eftir þeirra framlagi í þessu. Þeir hljóta að hafa einhver svör við þessu en það hefur verið vægast sagt lítið um þau og enginn hæstv. ráðherra hefur tekið þátt í umræðunni í þessu grundvallarmáli því að það fer ekki saman hljóð og mynd. Ef menn segja að þessi aðildarumsókn sé í gildi þá verða menn líka að ræða þetta út frá því sem var samþykkt þegar aðildarumsóknin var í gangi. Þar er t.d. þessi samningur milli framkvæmdastjórnar ESB og Íslands um aðlögunarstyrki til að aðlaga. Ég er hér með skýrslu utanríkisráðherra þar sem er sérstaklega tekið fram, virðulegi forseti, að krafa Evrópusambandsins er að þau kerfi sem ég hef oft vitnað til út af tollaframkvæmd, sem hefur kostað nokkra milljarða króna, að þau þurfa að vera tilbúin og prufukeyrð fyrir aðild. Þetta segir í skýrslu utanríkisráðherra frá árinu 2012, 2013. Þetta er bara eitt dæmi. Þessi ríkisstjórn ætlar að keyra þetta mál í gegnum þingið hér án þess að taka þessa umræðu.
Ég fékk frá meðlimum utanríkismálanefndar minnisblöð, sem ég bað um fyrir mörgum vikum síðan þegar ég kom inn í utanríkismálanefnd, sem fóru fyrir ríkisstjórn og minnisblöð sem fóru fyrir hv. utanríkismálanefnd. Þau komu hér á elleftu stundu og mikið af gögnum kom eftir að búið var að klára þetta mál út úr nefndinni. Þar erum við bara, virðulegi forseti, með gögn þar sem er sérstaklega farið yfir það og útskýrt valdaframsalið sem fylgir því að vera í Evrópusambandinu. Það er bara sérstaklega skrifað út hvað það þýðir varðandi t.d. löggjafarvaldið, framkvæmdarvaldið o.s.frv. Hér eru hv. stjórnarþingmenn sem virðast ekki hafa hugmynd um þetta mál, ekki hugmynd. Þetta var ekki klárað í nefndinni. Það er fáheyrt, ég man bara ekki eftir því að mál sé tekið út og samt sem áður þá eru menn á þeim stað að gögn sem eru nauðsynleg til þess að afgreiða málið eru ekki komin. Þau eru send eftir að það er búið að taka málið út úr nefndinni og menn eru að gera allt til að koma í veg fyrir það að staðreyndirnar komi fram og menn ræði þessi mál. Reyndar er það svo að þegar þessi minnisblöð komu loksins þá er það með ólíkindum hvað það voru fá minnisblöð sem fóru fyrir ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur, með ólíkindum. Ég vek athygli á því að sú ríkisstjórn fór í þá vegferð að reyna að fangelsa fyrrverandi hæstv. forsætisráðherra, Geir H. Haarde, og á endanum voru einhverjir dómarar sem dæmdu hann fyrir að halda ekki nógu marga fundi og ekki nógu mörg minnisblöð. Það er áhugavert að sú ríkisstjórn var eiginlega ekki með neinar upplýsingar, ef þetta er rétt, til sinnar eigin ríkisstjórnar. En þó er þetta nóg til þess að við fáum svör við spurningum sem við erum búin að kalla hér eftir og í rauninni vissum svörin við, það vita allir sem vilja vita nema stjórnarmeirihlutinn.
Síðan ganga menn hér fram, virðulegi forseti, og tala um að við fáum tryggingafélögin ef við förum í ESB. Eins og þeir viti ekki af því að það séu til erlend tryggingafélög hérna. Hvað með EES? Ég er tryggður í erlendu tryggingafélagi, það eru tugþúsundir Íslendinga tryggðir hjá erlendum tryggingafélögum. Reyndar hef ég flutt sjálfur inn erlent tryggingafélag og það var tiltölulega einfalt eftir að við fórum í EES. Sama með þegar menn vísvitandi skrökva því að það séu gjaldeyrishöft á íslenskum lífeyrissjóðum. Þetta er fullkomin fásinna. Það er nú þannig að íslenskir lífeyrissjóðir mega, samkvæmt lögum frá okkur, eiga 55% af eignum í erlendum eignum en eru nú bara með 41%, eftir nokkur ár verður það komið upp í 65%. Það erum við sem tökum ákvörðun um það og það eru engin gjaldeyrishöft.
Virðulegi forseti. Hér voga menn sér að tala eins og þeir séu að hugsa um almannahagsmuni, voga sér að gera það. Það er alveg ljóst hvaða hópar græða á því að Ísland gangi í ESB. Það eru stjórnmálamenn og embættismenn. Ég ætla að byrja á því að biðjast afsökunar fyrir fram á því sem ég ætla að líkja þessum ESB-sinnum við. Virðulegi forseti. Ég ætla að byrja á því að biðja þá hópa afsökunar, en þeir minna mig gríðarlega mikið á trúarhóp votta Jehóva. Ég hef fengið þá í heimsókn, virðulegi forseti, og ef þú ætlar að ræða við þá um mál sem snúa að trúarmálum þá er það ekki hægt. Þeir taka engum rökum. Reyndar er þetta heldur ekki ósvipað og hér áður fyrr þegar menn trúðu á Sovétríkin og þegar þú ert á þessum stað þá ertu ekki að ræða neitt málefnalega. Þú ert ekki að draga fram staðreyndir, þú hefur fyrst og fremst sértrú á ákveðnum hlutum (Forseti hringir.) því það sem hv. þingmenn hafa lagt fram sem rök fyrir því að við göngum í ESB stenst enga skoðun.