þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir svarið. Ég tek undir hvert orð, ég er sammála hv. þingmanni. Ég held að þetta sé nákvæmlega málið þó að menn tali með öðrum hætti ríkisstjórnarmegin í lífinu. En það sem mig langar hins vegar aðeins að beina sjónum mínum að í síðara andsvari varðar þjóðaratkvæðagreiðsluna sjálfa og þátttökuhlutfall í þjóðaratkvæðagreiðslu. Nú var það þannig að hæstv. forsætisráðherra kom hér og talaði um að það þyrfti aukinn meiri hluta. Þetta er risaákvörðun. Þetta er eitthvert stærsta mál sem við höfum rætt hér í þinginu árum eða áratugum saman. Þetta er gríðarlegt hagsmunamál fyrir íslensku þjóðina, gríðarlegt. Því veltir maður því fyrir sér, og það er greinilegt að hæstv. forsætisráðherra hefur velt því fyrir sér líka — ef við gefum okkur að þjóðaratkvæðagreiðslan fari 51 á móti 49 í 50% kosningu, er það þjóðarvilji? Er hægt að halda áfram í slíkri vegferð þegar einn fjórði kosningabærra manna hefur sagt já? Það væri áhugavert að heyra eitthvað um það hjá hv. þingmanni.