157. löggjafarþing — 108. fundur, 21. maí 2026.
þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
516. mál
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða spurningu. Svarið er mjög stutt: Þessi ríkisstjórn mun nota allt, þó að það sé bara 50,0001% þátttaka, til þess að fara í þessa vegferð. Hún mun alltaf vilja fara í Evrópusambandið, alveg sama hvað kemur frá Brussel, alveg sama. Þegar menn eru á þessum stað, í þessari sértrú, þá skiptir ekkert annað máli en að koma Íslandi inn í Evrópusambandið. Allt annað er fullkomið aukaatriði. Því miður.