157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:07]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Mér skilst að hv. þingmaður sé tímabundinn þannig að ég ætla að reyna að vera snöggur. Ég ætla að byrja á að frábiðja mér að því sé haldið fram að ég sem Evrópusinni, sem ég svo sannarlega er og stoltur sem slíkur, sé að gæta einhverra sérhagsmuna. Ég væri til í að heyra hv. þingmann útskýra hvaða sérhagsmuna ég er að gæta þegar ég tala fyrir því að við göngum í Evrópusambandið á þeim forsendum að ég trúi því að það sé leið til að hér skapist meiri efnahagslegur stöðugleiki, að verðbólga geti lækkað og vextir geti lækkað. Það var talað um það hér að það væri langsótt kenning. En hvað segja dæmin? Írland sem dæmi — þar er atvinnuleysi lægra en hér, hagvöxtur hærri en hér, vextir lægri og náttúrlega verðbólga. Það sama á við í Lúxemborg, þar eru lífskjör almennt betri en hér. Malta — þar eru lífskjör kannski ekki þau sömu og hér, en þau eru samt að nálgast okkur óðfluga enda er hagvöxtur þar meiri, atvinnuleysi lægra, vextir lægri. Þetta eru að mínu mati almannahagsmunir en ekki sérhagsmunir. Ég væri til í að spyrja hv. þingmann: Hvaða sérhagsmuni er ég að standa vörð um?