157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:08]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég stend við þessa fullyrðingu mína. Ég er ekkert að beina þessu persónulega til hv. þingmanns en freistnivandinn er gríðarlegur þegar kemur að Evrópusambandinu. Það liggur alveg fyrir að stjórnmálamenn og embættismenn auka gríðarlega möguleika sína á störfum og góðum kjörum ef Ísland gengur í Evrópusambandið. Það er bara staðreynd. Ef við förum yfir þessi 27 ríki Evrópusambandsins þá getur þú pikkað út ákveðna — ég myndi nú ekki taka Lúxemborg sem dæmi, ég held að það sé ekki sanngjarnt. Lúxemborg er í svo góðri stöðu, er með sitt alþjóðlega bankakerfi og berst hart gegn því, sem Evrópusambandið vill, að samræma skattalöggjöfina. Í ofanálag eru þar svo margar stofnanir í Evrópusambandinu að þeir eru ekki einu sinni nettógreiðendur inn. Þeir fá meiri tekjur frá Evrópusambandinu en þeir greiða inn, þessi stórríka þjóð. Það er áhugavert að fara í gegnum Írland því að dregillinn hefur ekki einungis verið rósrauður þegar kemur að Írlandi. En síðan getum við náttúrlega talað um öll hin löndin. Menn tala oft um vandræði Breta, sem eru til staðar, en það talar enginn um vandræði Frakka eða Þjóðverja o.s.frv. En það er enginn sem bjargar okkur frá verðbólgunni nema við sjálf. Evrópusambandið mun ekki fjölga lóðum í Reykjavík. Borgarstjórnarmeirihlutinn verður að gera það. Ef Samfylkingin og Viðreisn vildu fara í þá vegferð sem þau fóru í, að byggja bara dýrt í Reykjavík, sem ræður markaðinum, þá getur Evrópusambandið ekkert bjargað okkur frá því. Við þurfum að gera það.