157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:11]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er gott betur en einhverjar sex stöður fyrir Evrópuþingmenn. Það eru hundrað stöður sem þarf að fylla, helst af Íslendingum. Það er miðað við að það sé ákveðið hlutfall frá hverju landi fyrir sig. Ef menn vilja í fullri alvöru halda því fram að það sé ekki freistnivandi fyrir stjórnmálamenn og embættismenn að vilja að við göngum í Evrópusambandið þá finnst mér mjög langt seilst, mjög langt. Ísland hefur orðið alveg ótrúlega ríkt á ótrúlega skömmum tíma eftir að við tókum okkar mál í eigin hendur. Vill hv. þingmaður að við eigum enn þá að vera undir Dönum? Heldur hann að það væri sama velmegun í landinu þá? Hafa verið vaxtarverkir? Já. Stærsti vandinn er sá að við erum með of bólgna kjarasamninga. Það versta er þegar við látum hið opinbera ganga á undan. Sömuleiðis er lóðaskortur stórt vandamál og núna er ríkisstjórnin orðin sérstakt vandamál með sín útbólgnu ríkisútgjöld og skattahækkanir. Ef við förum yfir einstök lönd þá getum við auðvitað ekki borið okkur saman við Lúxemborg. Það segir sig alveg sjálft. Ég veit ekki hvort við viljum fara þangað. Við reyndum að verða eitthvert alþjóðlegt bankaland og það var ekki góð hugmynd. Við erum með meiri sveiflur en þær eru að minnka vegna þess að það eru komnar fleiri stoðir undir atvinnulífið sem er gríðarlega mikilvægt. Við þurfum að taka á ákveðnum hlutum og jafnvel þótt við værum í Evrópusambandinu þá myndi það ekki hjálpa okkur við það. Það er ekki gott ef þú ert með allt á fleygiferð og mjög lága vexti. Margar þjóðir eru með lága vexti vegna þess að það er lítið að gerast þar. Evrópa hefur dregist aftur úr, sérstaklega ESB, eins og Draghi, ESB-sinninn sjálfur, hefur bent á. Það vantar nýsköpun, það vantar stór fyrirtæki og ESB er að dragast aftur úr bæði Bandaríkjunum og Kína og fleiri svæðum.