157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:14]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Við ræðum hér stórt mál í þinginu, eitt það stærsta um langt árabil, mál sem snertir framtíðarstöðu Íslands, sjálfstæði þjóðarinnar, yfirráð okkar yfir auðlindum, hagsmuni byggðanna, atvinnulífsins og heimilanna í landinu. Við ræðum tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort halda eigi áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

Ég vil strax í upphafi taka skýrt fram að ég er hliðhollur því að þjóðin fái að segja sína skoðun. Ég tel að í svona stóru máli eigi þjóðin sjálf að hafa orðið. Það er ekki veikleikamerki að leita til þjóðarinnar. Það er styrkur lýðræðisins. Jafnframt vil ég segja það jafn skýrt að ég er andvígur því að Ísland gangi í Evrópusambandið. Það er grundvallarmunur á þessu tvennu. Það er hægt að styðja þjóðaratkvæðagreiðslu án þess að styðja aðild. Það er hægt að segja: Já, þjóðin á að fá að kjósa en nei, Ísland á ekki að ganga í Evrópusambandið. Það er mín afstaða.

Virðulegi forseti. Við Íslendingar erum fámenn þjóð en við erum fullvalda þjóð. Við höfum byggt upp samfélag norður í Atlantshafi við erfiðar aðstæður. Við höfum nýtt auðlindir okkar af ábyrgð, staðið vörð um tungumál okkar, menningu, byggðir og atvinnulíf. Við höfum tekið stórar ákvarðanir sjálf. Það hefur ekki alltaf verið auðvelt en það hefur verið okkar leið.

Fullveldið er ekki gamaldags hugtak, það er ekki minjagripur úr fortíðinni. Fullveldið er lifandi verkfæri þjóðarinnar til að taka ákvarðanir um eigin framtíð. Það snýst um hver setji reglurnar. Það snýst um hver ráði auðlindunum. Það snýst um hver ákveði stefnuna í sjávarútvegi, landbúnaði, orkumálum, gjaldeyrismálum, skattamálum og utanríkismálum. Þar tel ég að Ísland eigi að halda sem mestu ákvörðunarvaldi heima fyrir. Það er ekki vegna þess að við viljum standa ein. Ísland stendur ekki eitt. Við erum aðili að NATO, við erum í EES-samstarfinu og EFTA. Við eigum náið samstarf við Norðurlöndin. Við eigum öflugt samband við Evrópu, Norður-Ameríku og önnur ríki. Við erum virk þjóð í alþjóðasamstarfi en það er mikill munur á samstarfi fullvalda ríkja og aðild að yfirþjóðlegu sambandi þar sem ákvarðanir færast að verulegu leyti frá þjóðríkinu til stofnana utan landsins.

Virðulegi forseti. Það er sagt að þjóðaratkvæðagreiðslan snúist aðeins um áframhald viðræðna, ekki um endanlega aðild. Það er rétt að formi til en við megum ekki horfa fram hjá því að slíkar viðræður hafa pólitíska þýðingu. Þær setja stefnu, gefa merki og binda orku stjórnsýslunnar og stjórnmálanna. Þær vekja væntingar innan lands og utan. Þess vegna þarf umræðan að vera heiðarleg. Það á ekki að segja fólki að þetta sé lítil tæknileg spurning. Þetta er stórpólitísk spurning. Hún snýst um það hvort Ísland eigi að fara aftur inn á braut sem miðar að aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Ég tel að þjóðin eigi rétt á að taka afstöðu til þess en ég mun sjálfur mæla gegn því að við göngum í Evrópusambandið eins og ég kom inn á hér áðan.

Ástæðurnar eru margar en fyrst og fremst snúa þær að íslenskum hagsmunum. Í fyrsta lagi er það sjávarútvegurinn. Hann er ekki bara ein atvinnugrein af mörgum á Íslandi. Hann er ein af meginstoðum þjóðarbúsins. Hann er undirstaða byggðar víða um land. Hann er útflutningsgrein, gjaldeyrisskapandi grein og ein mikilvægasta ástæða þess að við höfum getað byggt upp velferðarsamfélag á þessari eyju. Yfirráð Íslands yfir fiskveiðiauðlindinni eru þjóðarhagsmunir. Þau voru ekki gefin okkur, þau voru sótt með baráttu, þrautseigju og pólitískri einurð. Landhelgisbaráttan var ekki formsatriði. Hún var sjálfstæðisbarátta í reynd, snerist um að Íslendingar hefðu sjálfir rétt til að ráða nýtingu auðlinda sinna. Það væri stórt skref að færa sjávarútvegsmál inn í sameiginlega stefnu Evrópusambandsins. Sumir segja að við gætum samið um undanþágur. Kannski væri hægt að ná einhverjum sérlausnum en spurningin er þessi: Af hverju eigum við að taka slíka áhættu? Af hverju eigum við að setja helstu auðlind þjóðarinnar inn í samningsferli þar sem niðurstaðan er óviss? Af hverju eigum við að láta reyna á það hvort aðrir samþykki það sem við ráðum í dag sjálf? Ég tel að það sé einfaldlega óþarfi. Við höfum yfirráð yfir sjávarauðlindinni í dag. Við eigum að halda þeirri stöðu.

Virðulegi forseti. Í öðru lagi er það landbúnaðurinn og byggðirnar. Ísland er ekki eins og lönd á meginlandi Evrópu. Við erum norðlæg eyja. Við búum við annað loftslag, annan framleiðslukostnað og mikla fjarlægð frá mörkuðum. Landbúnaður hér á landi er ekki aðeins spurning um hagkvæmni í þröngum skilningi. Hann er spurning um fæðuöryggi, búsetu, menningu, landnýtingu og sjálfstæði. Við sáum það í heimsfaraldri, við sjáum það í stríði í Evrópu og við sjáum það í óstöðugleika í alþjóðaviðskiptum að fæðuöryggi skiptir máli. Það er ekki sjálfgefið að aðfangakeðjur haldist alltaf opnar. Það er ekki sjálfgefið að lítil eyþjóð geti treyst á að fá allt að utan þegar á reynir. Þess vegna eigum við að standa vörð um innlenda framleiðslu og íslenskan landbúnað. Aðild að Evrópusambandinu myndi setja íslenskan landbúnað inn í allt annað regluverk og miklu harðari samkeppni. Þar myndu íslenskir bændur keppa við framleiðendur sem búa við allt aðrar aðstæður. Ég spyr, frú forseti: Er það skynsamlegt fyrir Ísland? Er það í þágu byggðanna? Er það í þágu fæðuöryggis? Ég tel svo ekki vera.

Frú forseti. Í þriðja lagi eru það orkumálin. Ísland hefur sérstöðu í orkumálum. Við búum við endurnýjanlega orku, vatnsafl og jarðvarma, sem hefur verið undirstaða lífskjara, iðnaðar, húshitunar og samkeppnishæfni. Við eigum að nýta þá sérstöðu af skynsemi en við eigum líka að varðveita forræði okkar yfir henni. Orka er ekki bara orka. Orka er ekki bara vara. Orka er innviður, orka er öryggismál, orka er byggðamál. Orka er lykillinn að framtíðaruppbyggingu atvinnulífs á Íslandi. Við eigum að gæta þess að ákvarðanir um orkumál séu teknar hér heima með íslenska hagsmuni að leiðarljósi.

Í fjórða lagi eru það gjaldmiðils- og efnahagsmálin. Margir nefna evruna sem helstu röksemd fyrir aðild. Það er skiljanlegt að fólk vilji stöðugleika. Íslensk heimili og fyrirtæki hafa fundið fyrir háum vöxtum, verðbólgu og sveiflum en það er ekki sjálfgefið að lausnin sé að ganga í Evrópusambandið. Aðild að ESB er ekki einföld gjaldmiðilsaðgerð. Hún er pólitísk heildarákvörðun um þátttöku í stofnanakerfi, regluverki og valdframsali. Við þurfum að styrkja íslenskt efnahagslíf, auka aga í ríkisfjármálum, draga úr verðbólgu, efla samkeppni og skapa stöðugleika. Þar erum við kannski að horfa til þess árangurs sem náðist á árunum 2014–2019, fyrir Covid, fyrir stríð í Úkraínu, fyrir jarðeldana á Reykjanesskaga. Það er sá stöðugleiki, frú forseti, sem við viljum ná á nýjan leik.

Við eigum ekki að fórna sjálfstæðri ákvarðanatöku í þeirri von að öll vandamál hverfi við inngöngu í Evrópusambandið. Sambandið sjálft glímir við miklar áskoranir; skuldastöðu, samkeppnishæfni fer versnandi, orkumál eru komin í erfiða stöðu víða í Evrópu, fólksflutninga, varnarmál og vaxandi pólitíska spennu innan aðildarríkja. Það er mikil óvissa innan Evrópusambandsins í mörgum stórum málaflokkum.

Öldrun þjóða Evrópusambandsins og illa fjármagnað lífeyrissjóðakerfi er síðan risamál sem mikil óvissa er um að Evrópusambandsríkjunum muni takast að leysa á næstu árum og áratugum, risastórt mál sem snýr að fjármögnun lífeyrissjóðakerfa þessara landa. Ekki er útséð um að það takist að leysa þessa stöðu. Hér er um alvöruógn að ræða fyrir ríkisfjármál aðildarríkja Evrópusambandsins. Það er einungis hægt að benda á kannski tvö Evrópusambandsríki sem standa að einhverju leyti sambærilega að málum og Íslendingar. Það eru Danmörk og Holland. Víða eru gríðarlegir erfiðleikar gagnvart lífeyrissjóðsmálum þessara ríkja. Við vitum það og það hefur komið fram í umræðu að stór hluti af fjárlagahalla Frakklands undanfarin ár, og hann er gríðarlegur, halli á ríkisfjármálunum í Frakklandi, um 5–6% á ári — við vitum og höfum heyrt að lífeyriskerfið í Þýskalandi er illa fjármagnað þar sem er mikið treyst á gegnumstreymiskerfi og þar er ekki hugsað um sjálfbærni til lengri tíma. Þetta eru ekki léttvæg mál þegar við erum að hugsa um þessa stöðu sem tvö stærstu ríkin, sem eru hryggjarstykkið í Evrópusambandinu, munu eiga í gríðarlegum erfiðleikum með á næstu árum og áratugum.

Virðulegi forseti. Ég vildi einnig nefna EES-samninginn. Hann hefur þjónað Íslandi vel. Hann tryggir aðgang að innri markaði Evrópu án þess að Ísland sé aðili að Evrópusambandinu. Vissulega fylgja honum áskoranir. Vissulega þurfum við að ræða lýðræðishallann. Vissulega þurfum við að vera vakandi fyrir því að verja íslenska hagsmuni innan EES en samanburðurinn er ekki milli fullkomins EES-samnings og fullkominnar ESB-aðildar, samanburðurinn er á milli raunverulegra kosta. EES-samningurinn gefur okkur víðtækan markaðsaðgang en við höldum sjálfstæði í sjávarútvegi, landbúnaði og tollamálum að verulegu leyti, sjávarauðlindinni og gjaldeyrismálum. Það er ekki smáatriði. Þetta eru kjarnahagsmunir Íslands. Þess vegna tel ég að skynsamlegasta leiðin sé að styrkja stöðu Íslands innan EES, efla hagsmunagæslu okkar í Brussel, bæta innleiðingu reglna, forðast gullhúðun, sem er vissulega að stóru leyti íslenskt vandamál, auka pólitíska umræðu um EES-mál á Alþingi og tryggja að Ísland nýti öll þau áhrif sem við höfum innan núverandi samstarfs. Við þurfum ekki að ganga í Evrópusambandið til að vera Evrópuþjóð. Við erum Evrópuþjóð. Við erum norræn lýðræðisþjóð. Við erum þátttakendur í evrópsku samstarfi en við þurfum ekki að vera aðildarríki ESB til að eiga gott samstarf við Evrópu.

Virðulegi forseti. Ég geri mér fulla grein fyrir því að margir góðir og ábyrgir einstaklingar eru annarrar skoðunar. Þeir telja að Ísland eigi að ganga lengra, þeir telja að við eigum að sitja við borðið þar sem ákvarðanir eru teknar. Þeir telja að evran og aðild að ESB myndi auka stöðugleika. Ég virði þau sjónarmið. Þessi umræða á ekki að vera háð með upphrópunum og tortryggni, hún á að vera málefnaleg. Ég bið líka um að sjónarmið þeirra sem vilja standa vörð um sjálfstæði Íslands séu virt. Það er ekki afturhald að vilja halda yfirráðum yfir sjávarauðlindinni. Það er ekki einangrunarhyggja að vilja verja íslenskan landbúnað. Það er ekki þjóðernisremba að vilja að Alþingi og íslenska þjóðin ráði sem mestu um framtíð landsins. Það er einfaldlega eðlileg afstaða fullvalda þjóðar.

Virðulegi forseti. Þjóðaratkvæðagreiðsla getur verið heilbrigð leið til að fá fram skýra niðurstöðu en þá þarf að tryggja að umræðan verði vönduð. Það þarf að tryggja að kjósendur fái hlutlausar og greinargóðar upplýsingar. Það þarf að ræða kosti og galla. Það þarf að ræða ekki aðeins hvað gæti unnist heldur líka hvað gæti tapast. Það þarf að ræða hvað aðild þýðir fyrir sjávarútveginn, landbúnaðinn, gjaldmiðilinn, byggðirnar, orkumálin og stjórnskipan landsins. Það þarf að vera skýrt að þjóðin fái lokaorðið. Ef viðræður yrðu teknar upp og ef samningur næðist verður sá samningur að fara fyrir þjóðina. Engin ríkisstjórn og enginn meiri hluti á Alþingi á að leiða Ísland inn í Evrópusambandið án skýrs samþykkis þjóðarinnar í þjóðaratkvæðagreiðslu. Það er lýðræðisleg krafa, eðlileg krafa, og það er krafa sem allir ættu að geta sameinast um, sama hvar þeir standa í Evrópumálum.

Virðulegi forseti. Mín niðurstaða er þessi: Já, þjóðin á að fá að segja sína skoðun. Já, það er eðlilegt að þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram í svona stóru máli. En nei, ég tel ekki rétt að Ísland gangi í Evrópusambandið. Við eigum að vera sjálfstæð þjóð í öflugu alþjóðasamstarfi. Við eigum að standa vörð um EES-samninginn, NATO-samstarfið, tvíhliða varnarsamninginn við Bandaríkin, norræna samvinnu og góð samskipti við Evrópusambandið. Við eigum líka að leggja sérstaka áherslu á að eiga í góðri samvinnu við lýðræðisþjóðir við Norður-Atlantshaf eins og Bretland og Kanada. Við eigum að vera virk og ábyrg í opnu samfélagi en við eigum líka að þekkja okkar sérstöðu. Við eigum að vita hvar rauðu línurnar liggja. Við eigum að halda forræði yfir auðlindum okkar og verja byggðirnar og helstu ákvarðanir sem snúa að þjóðarhagsmunum okkar eiga að vera teknar á heimavelli en ekki í Brussel.

Ísland hefur alla burði til þess að standa sterkt utan Evrópusambandsins. Við höfum auðlindir, menntað fólk, öflugt atvinnulíf, sterka lýðræðishefð og einstaka landfræðilega stöðu. Við eigum ekki að vanmeta okkur sjálf. Við eigum ekki að halda að framtíð Íslands ráðist af því að við færum vald frá Austurvelli til Brussel. Framtíð Íslands ræðst af því hvernig við nýtum eigin styrkleika, hvernig við tökum ábyrgð og hvernig við stöndum saman um íslenska hagsmuni. Þess vegna segi ég, virðulegi forseti: Treystum þjóðinni, förum í málefnalega umræðu og höldum þjóðaratkvæðagreiðslu ef það er vilji Alþingis og þjóðarinnar að fara og taka dýpri skref og ræða Evrópusambandsaðild, ef þjóðaratkvæðagreiðslan fer með þessum hætti, ef jáið nær í gegn í haust. En fyrst og fremst: Verjum um leið sjálfstæði Íslands. Höfum það í huga þegar við greiðum atkvæði í haust hvernig við sjáum fyrir okkur sjálfstæði Íslands, yfirráð yfir auðlindunum og rétt þjóðarinnar til að ráða eigin framtíð. Það er mín afstaða.

Mig langaði síðan, frú forseti, að koma inn á, sem ég tel bara gott að komi svolítið inn í þessa umræðu, þessa merkilegu skýrslu sem var unnin af Mario Draghi, fyrrverandi seðlabankastjóra Evrópu og forsætisráðherra Ítalíu, sem hann vann fyrir Evrópusambandið. Ætli séu ekki tvö ár í sumar síðan skýrslan kom út. Í þeirri skýrslu sendi Draghi ríkjum Evrópusambandsins skýr skilaboð og fyrst og fremst snerist skýrslan um samkeppnishæfni Evrópusambandsríkja. Hann talaði í þessari skýrslu um að samkeppnishæfni Evrópusambandsríkja væri ekki sjálfgefin. Hún verður ekki tryggð með reglugerðum einum saman heldur með fjárfestingu, nýsköpun, orkuöryggi, einfaldara regluverki og öflugri framleiðni. Í skýrslunni kemur fram að Evrópa hafi dregist aftur úr Bandaríkjunum og Kína á mikilvægum sviðum. Framleiðnivöxtur hefur verið of veikur. Tæknifyrirtæki vaxa síður upp í Evrópu og fjármögnun nýsköpunar er of takmörkuð. Evrópa á sterkar háskólastofnanir, menntað fólk og öfluga innviði en henni hefur gengið verr að breyta hugmyndum í stór alþjóðleg fyrirtæki.

Einn stærsti veikleiki í Evrópu í dag er hátt orkuverð. Evrópskur iðnaður stendur frammi fyrir miklum kostnaði, sérstaklega orkufrek framleiðsla. Þegar fyrirtæki í Evrópu þurfa að greiða mun hærra verð fyrir orku en keppinautar þeirra í Bandaríkjunum eða Asíu veikist samkeppnisstaðan. Þess vegna leggur Mario Draghi áherslu í skýrslu sinni á hraðari uppbyggingu raforkukerfa, aukið orkuöryggi og betri nýtingu hreinnar orku.

Annað lykilatriði í skýrslu Draghis er regluverkið. Hann bendir á í skýrslunni að Evrópa sé oft of hæg í ákvörðunum og of flókin í framkvæmd. Fyrirtæki þurfa einfaldara starfsumhverfi, hraðari leyfisveitingar og minni stjórnsýslubyrði. Það er ekki nóg að setja metnaðarfull markmið ef kerfið sjálft tefur framkvæmdirnar.

Þriðji punkturinn er fjárfesting. Draghi segir að Evrópa þurfi gríðarlega aukna fjárfestingu á næstu árum, bæði í grænni umbreytingu, stafrænum innviðum, varnarmálum, rannsóknum og nýsköpun. Án slíkrar fjárfestingar mun Evrópa ekki halda í við þau ríki sem nú leggja mikla áherslu á iðnaðarstefnu, tækniþróun og orkuöryggi.

Fjórði punkturinn er tæknin. Evrópa má ekki verða aðeins markaður fyrir tækni annarra. Hún þarf sjálf að vera leiðandi í gervigreind, örflögum, líftækni, hreinni tækni og stafrænum lausnum. Það skiptir máli að fyrirtæki geti vaxið, fengið fjármagn og starfað á sameinuðum innri markaði í stað þess að mæta sundurlausum reglum milli ríkja.

Virðulegi forseti. Draghi-skýrslan er í raun viðvörun. Hún segir að ef Evrópusambandið bregðist ekki við muni það missa efnahagslegt vægi, tæknilegt sjálfstæði og pólitísk áhrif. Samkeppnishæfni byggist ekki aðeins á háleitum yfirlýsingum. Hún byggist á því að fyrirtæki geti framleitt, fjárfest, ráðið fólk, nýtt orku í samkeppnishæfu umhverfi og komið hugmyndum sínum í framkvæmd. Þetta er kjarni málsins. Evrópa þarf meiri framkvæmdakraft, lægra orkuverð, öflugri fjárfestingu, minna skrifræði og sterkari nýsköpun, annars verður hún eftirbátur þeirra ríkja sem bregðast hraðar við breyttum heimi. (Forseti hringir.) Höfum í huga það sem Merz, kanslari Þýskalands, sagði í Davos fyrr á þessu ári og í fjölda ræðna síðan þá: (Forseti hringir.) Það þarf mikið að gerast í Evrópu, það þarf mikið að gerast í Þýskalandi til að byggja aftur upp samkeppnishæfni. Það eru gríðarleg vandamál. Þetta sagði kanslari Þýskalands, af öllum mönnum. (Forseti hringir.) Við ættum að hafa það í huga þegar við ræðum þessi mál hér í þinginu.