157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:36]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jónínu Brynjólfsdóttur fyrir andsvarið. Það hafa orðið gríðarlegar breytingar í íslenskum landbúnaði á undanförnum árum. Ég man að árið 1980 voru milljón kindur á vetrarfóðrum á Íslandi, það voru sirka fjórar kindur á hvert mannsbarn í landinu. Svo gerist það á síðustu árum að kindur á vetrarfóðrum eru orðnar færri en landsmenn, kannski um 380.000, held ég að sé talan sem er verið að vinna með núna. Að sama skapi og á svipuðu tímabili í kúabúskapnum og mjólkurvinnslunni og mjólkurbúskapnum hefur búum fækkað, úr 1.400 í svona 430 núna á einhverjum 25, 30 árum. Mikil framleiðniaukning, búin hafa styrkst og stækkað, það er að einhverju leyti betri staðan þar.

Ég hef gríðarlegar áhyggjur af því að það sé mikil áhætta fólgin í þessu eins og Evrópusambandið er að sinna sínum bændum. Ég hef lent í því og örugglega margir hérna inni, hv. þingmenn, ég hef orðið var við og séð persónulega mótmæli bænda í Evrópu sem eru búin að standa meira og minna árum saman. Ég tafðist í umferð í Kíl í Þýskalandi í tvo tíma út af mótmælum. Þannig að Evrópusambandið getur seint talist fyrirmynd eða það sem íslenska bændur ætti að dreyma um að ganga inn í, held ég. Og ég hef ekki skilið Bændasamtökin öðruvísi en að þau hafi miklar áhyggjur af þessu og vilji ekki ganga inn.

Og svo kannski rétt í lokin: Stuðningur við íslenska bændur fyrir kannski 20, 30 árum eða 40, maður eldist, var kannski 5–6% af landsframleiðslu. Stuðningur við bændur á Íslandi er innan við 1% af landsframleiðslu í dag. Ég held að það sé mikilvægt að við höfum í huga hvað þessi stuðningur hefur minnkað gríðarlega. (Forseti hringir.) Það er gríðarlega mikilvægt að tryggja fæðuöryggi í landinu. Ég er viss um að það eru aðrir þingmenn sem muna þetta betur en ég held að um 53% matvæla sem við borðum á Íslandi í dag séu framleidd á Íslandi. (Forseti hringir.) Það er a.m.k. einhver tala sem ég er með í kollinum, það er þá hægt að leiðrétta mig með það.