157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:39]
Horfa

Jónína Brynjólfsdóttir (F) (andsvar):

Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég velti fyrir mér, af því að þingmaðurinn kom inn á EES-samninginn, og mér er svolítið hugleikið hvað það er umfram EES-samninginn sem við þurfum raunverulega. Er eitthvað sem vantar upp á í því sem hann færir okkur sem við teljum nauðsynlegt fyrir okkur? Eru einhverjir annmarkar á honum sem leiða til þess að það sé mjög mikilvægt fyrir okkur að fara í Evrópusambandið? Hingað til höfum við verið bara mjög sátt við EES-samninginn. Það sem ég velti fyrir mér er: Hvað er það nákvæmlega sem kallar á að við förum frekar í Evrópusambandið, annað en að láta frá okkur þetta endanlega lagavald? Og ef við ætlum að gera þetta og ef við ætlum að eiga hlutlausa umræðu og leyfa fólki að taka upplýsta ákvörðun, af hverju væri þá ekki mikilvægt að hafa aukinn meiri hluta á bak við þá ákvörðun í staðinn fyrir hreinan meiri hluta?