157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:42]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir prýðisgóða ræðu. Hann fór yfir víðan völl eins og hann gerir vanalega. Ef ég man rétt spurði hann í ræðu sinni: Af hverju að taka áhættu þegar niðurstaða er óviss? Hann ræddi sérstaklega um sjávarútveginn, landbúnaðinn, orkumálin og fjölmargt fleira en mig langar að vera á svipuðum nótum og hv. þm. Jónína Brynjólfsdóttir sem var hérna í andsvörum áðan og ræða landbúnaðinn. Ég hnýt nefnilega um það í nefndaráliti meiri hlutans, og í sjálfu sér ágætt að það er ekkert verið að fela neitt hvað þetta varðar, að þar er sagt beinum orðum að tollvernd á landbúnaðarvörur frá öðrum aðildarríkjum falli niður með aðild að tollabandalagi Evrópusambandsins. Á öðrum stað í nefndarálitinu segir að það eigi að búa svo um hnútana ef til aðildar Íslands komi að áfram verði tryggt að hér sé hægt að stunda öflugan landbúnað í þágu fæðuöryggis, matvælaöryggis og byggðasjónarmiða. Þetta finnst mér ekki fara saman. Af þessu hef ég miklar áhyggjur þannig að mig langar að spyrja þingmanninn hvort hann deili þessum áhyggjum með mér og hvort hann telji ekki eðlilega kröfu að hæstv. utanríkisráðherra og meiri hlutinn hér á þessu þingi útskýri og setji fram, áður en þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram í ágúst, rauðar línur, m.a. varðandi landbúnað.