þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir svörin. Mér heyrist við deila þessum áhyggjum. Annað sem mig langar að koma á framfæri áður en ég ætla að halda síðan áfram með landbúnaðinn er að mér hefur þótt einkennilegt að hlusta hér á umræðuna bæði í gær og í dag þar sem hafa verið viðhafðar rangfærslur varðandi yfirlýsingar þáverandi ríkisstjórnar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks árið 2013. Það var aldrei lofað að það yrði farið í þjóðaratkvæðagreiðslu, bara þannig að það sé sagt — ekki átti ég aðild að þessari ríkisstjórn, var bara í allt öðru starfi á þessum tíma — þar sem ákveðið var að það yrði ekki haldið áfram þessum aðlögunarviðræðum, eins og ég hef kallað þær, við Evrópusambandið nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu. Þetta er það sem var sagt. Það var engu lofað, bara þannig að því sé haldið til haga. Ég veit að aðrir hafa reynt að leiðrétta þetta í dag.
Aftur að landbúnaðinum. Finnst þingmanninum ekki eðlilegt að stjórnvöld upplýsi, áður en við förum í þjóðaratkvæðagreiðslu, (Forseti hringir.) hvers vegna landbúnaðarkaflinn var ekki opnaður síðast, (Forseti hringir.) og hvaða skilyrði það voru, af hálfu Evrópusambandsins væntanlega, sem gerðu það að verkum að ekki var hægt að opna þennan kafla? (Forseti hringir.) Telur þingmaðurinn að eitthvað sé breytt?