157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:48]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég tek undir það sem kemur fram í máli hv. þm. Ingibjargar Davíðsdóttur varðandi þessar rangfærslur frá 2013. Þetta er reyndar kjörtímabilið áður en ég sjálfur kem inn á þing og er bara í bæjarmálum á Akureyri og er ekki endilega að hugsa um þetta frá degi til dags í sama mæli kannski og ég geri í dag. Það er mjög mikilvægt að halda til haga hverju var lofað eða fór í stjórnarsáttmála 2013 varðandi þessi mál.

Varðandi síðan landbúnaðarkaflann í aðildarviðræðunum 2009–2013 og að það hafi í raun engin umræða verið tekin varðandi landbúnaðarkaflann eða hann kláraður eða sjávarútvegskaflinn eða kannski líka það sem sneri að orkumálum, þá held ég að það væri bara mjög gott og upplýsandi fyrir allt og alla hér að fara í gegnum það vegna þess að þetta eru kannski jafn veigamikil atriði í dag og þau voru þá og þurfa að fá góða umræðu. Vægi þess hefur ekkert minnkað fram á okkar dag frá því sem þá var.