þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir ljómandi góða ræðu og góða yfirferð. Ég ber mikla virðingu fyrir honum sem þingmanni og ber mikla virðingu fyrir hans skoðunum í þeim málum sem við fjöllum um hér í þinginu og þetta er engin undantekning á því. Þar sem ég veit líka að hv. þingmaður er maður staðreynda og vill hafa hlutina alveg á hreinu þá langar mig aðeins að velta upp varðandi þessa þjóðaratkvæðagreiðslu og framhaldið á henni síðan, hvernig sem hún fer — ég ætla kannski ekki að spyrja um þjóðaratkvæðagreiðsluna sjálfa en um skoðun þingmannsins, í ljósi þess að við erum sjálfstæð þjóð og þurfum að geta tekið sjálf upplýstar ákvarðanir um okkar framtíð: Er ekki eina leiðin fyrir okkur til að útkljá þetta mál um Evrópusambandið í eitt skipti fyrir öll að við fáum samning á borðið þar sem við getum farið yfir öll þessi atriði raunverulega sem við erum búin að vera að ræða hér síðustu tvo mánuði? Ef ég tel rétt eru komnir tveir mánuðir síðan við byrjuðum þessa vinnu í þinginu og eigum eftir að ræða núna í rúma þrjá mánuði í viðbót. Er það ekki raunverulega þannig að eina leiðin til að við getum öll horft á sama hlutinn og verið með sömu upplýsingarnar og tekið þá upplýsta ákvörðun saman, hvort sem við erum með eða á móti Evrópusambandinu, er að vera með samninginn fyrir framan okkur? Er það ekki eina leiðin sem við höfum í þessu samhengi?