þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Víði Reynissyni fyrir andsvarið. Jú, mér finnst mikilvægt að staðreyndir komi fram. Þá kannski skiptir líka máli á þessum tímapunkti þegar við erum að ræða þetta núna af hverju við erum ekki komin dýpra í umræðunni um það sem voru á tímabilinu 2009–2013 stóru málin. Það var sjávarútvegurinn, landbúnaðurinn, að einhverju leyti orkumálin og þessir helstu þættir. Ættum við ekki að vera komin aðeins dýpra inn í þessi grundvallaratriði? Við erum núna bara þessa dagana, ég held í umræðunni í dag eða gær, að sjá koma fram hluti þar sem kemur fram annars konar skilningur á hlutunum eða upplýsingar heldur en hafa kannski verið í umræðunni á síðustu misserum, t.d. það sem varðar sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins, hvort við getum verið fyrir utan hana og verið bara með okkar sjávarútveg í friði. Ég er þeirrar skoðunar að þetta þurfi allt að vera uppi og ætti að vera uppi þegar við förum í þessa atkvæðagreiðslu í haust til þess að dýpka það samtal. Ég stend þar í þessari umræðu. Mér finnst bara vanta gríðarlega mikið af upplýsingum til að upplýsa okkur hér í þinginu og þjóðina um hvað við erum að fara út í, í grundvallaratriðum. Ef maður er hræddur um að þjóðin og við séum ekki nægilega vel upplýst í þjóðaratkvæðagreiðslunni þá er betra bara að sitja heima heldur en að fara af stað í þann leiðangur. Ég er þeirrar skoðunar. Þetta er það sem maður hefur áhyggjur af, að það komi ekki fram allar þær upplýsingar sem við þurfum fyrir heilbrigða og góða umræðu.