þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Já, ég horfi líka á þessa stóru mynd. Hvernig hefur okkur Íslendingum vegnað, hvernig hefur Evrópusambandsríkjunum vegnað, hvernig hefur Bandaríkjunum vegnað, segjum bara frá aldamótum? Á Íslandi hefur verið, skulum við segja, bandarískur hagvöxtur. Hann er allt annar en evrópski hagvöxturinn frá aldamótum, allt annar. Það munar gríðarlega miklu.
Ég minntist áðan í minni ræðu á kanslara Þýskalands, Friedrich Merz, hvernig hann hefur talað mjög opinskátt um stöðu Þýskalands, aflvélar Evrópusambandsins, og hver staðan er í Þýskalandi. Af hverju eigum við að taka þá áhættu að fara inn í það efnahagsumhverfi sem er í Evrópu í dag og Evrópusambandinu, vitandi að við eigum mikið af tækifærum inni?
Eitt að lokum, frú forseti. Fyrir viku síðan var ég með fund norður á Akureyri með forstjóra atNorth. Þetta er áhugavert. Af hverju er það þannig að 50–60% af öllum fjárfestingum í gagnaverum í Evrópu eru á Norðurlöndunum þar sem 5% íbúa Evrópu búa? (Forseti hringir.) Jú, það er vegna innviða og orku. Það er ekki bara kælingin, það er aðgengi að orku og innviðum. Þetta er svo lýsandi fyrir þetta. Það myndu allir vilja vera í Þýskalandi að reisa gagnaver eða Frakkland en það eru bara ekki innviðir, (Forseti hringir.) það er ekki geta í dag til að standa í slíku. Það er svolítið lýsandi fyrir stöðu Evrópusambandsins í dag.