þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Forseti. Ég vil þakka hv. þm. Víði Reynissyni fyrir hans spurningu. Jú, það er akkúrat þetta sem mér finnst skipta svo miklu máli. Þegar ég lít til baka síðustu árin og áratugina þá hefur umræðan verið þannig að maður veit aldrei hvort maður er að koma eða fara og hvernig maður á að fóta sig í henni. Hvernig svo sem þetta fer þá erum við með þessu alla vega að taka eitt skref í þá átt að geta séð fyrir okkur einhverja sanngjarna og eðlilega lendingu. Þá getum við bara sagt: Íslendingar sögðu þetta og bara flott og þá vitum við það. Og síðan höldum við bara áfram að lifa. Það er nákvæmlega þetta. Ég er eiginlega farin að hlakka til þess, algerlega án tillits til þess hvernig ég ímynda mér að þetta kunni að fara, að við séum loksins að stíga eitthvert smáskref í átt að einhverjum stöðugleika í þessu máli, ef ég má bara hreinlega orða það þannig.