þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir gott svar. Ég held áfram að velta þessu fyrir mér á svipuðum nótum. Við erum að ræða þetta hér í þingsal, við höfum rætt þetta í um tvo mánuði í hv. utanríkismálanefnd og við eigum eftir að ræða þetta í a.m.k. einhverja daga í þinginu og síðan einhverja mánuði áður en til atkvæðagreiðslu kemur. Umræðan mun alltaf endurspegla það svolítið hvað þessi sagði eða hvað hinn sagði, eða túlkun hans á þessu eða hinu, fréttum af þessu eða yfirlýsingum frá þessum — en eina raunverulega lýðræðislega leiðin í þessu er að við greiðum atkvæði um þetta í haust. Vonandi segir þjóðin já til að við getum tekið næsta skref, sem er að fá samninginn til þess að þjóðin geti þá endanlega tekið ákvörðun um það hvað við ætlum að gera varðandi Evrópusambandið. Ef samningurinn er svo slæmur að fólki líst ekki á hann, þá segir fólk bara nei. Ef hann er góður, þá hef ég a.m.k. trú á að hann leiði okkur á jákvæðan veg. En ég held að það sé mikilvægt að segja já í haust til að fá samninginn þannig að við getum tekið upplýsta ákvörðun í framhaldinu. Þangað til verður óreiða um þetta.