157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:14]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf) (andsvar):

Forseti. Ég vil þakka hv. þm. Víði Reynissyni fyrir hans annað andsvar eða spurningu. Fyrst varðandi það að vera spurður: Hvort vilt þú þetta eða hitt? Það er náttúrlega bara stórkostlegt. Það eru ekkert allir sem búa í þannig aðstæðum eða í þannig samfélögum að þeir séu yfirhöfuð spurðir um nokkuð. Þetta er eitthvað sem við hér heima á Íslandi tökum bara svolítið sem gefnu. Við erum spurð og við fáum að ráða og þar fram eftir götunum. En mér finnst þetta svo mikilvægt í svona stóru máli, sem varðar alla þjóðina og hagsmuni hennar og auðlindir, að maður sé spurður: Vill maður skoða eitthvað meira í þessa átt? Mér finnst þetta kurteisi og mjög svo mikil virðing sem verið er að sýna fólkinu í landinu með því að fara þessa leið. Og ég skil ekki af hverju ekki er löngu búið að fara akkúrat þessa leið. Og síðan er það hitt að sitja uppi með val: Vil ég þetta eða hitt? Það er önnur lýðræðisveisla og það er bara stórkostlegt fyrir hvert og eitt okkar að fá tækifæri til að velja.