þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðisræðu. Mig langar rétt að koma inn á fáa punkta. Það voru nú margir punktar sem ég skrifaði hjá mér og ég kom ekki einu sinni með þá alla upp hérna. Ég er sammála hv. þingmanni, það sem ég óttast mikið er upplýsingaóreiða. Það var reyndar furðulegt hvað gerðist á Facebook hjá mér þegar tillagan kom fram hérna í mars, þingsályktunartillaga utanríkisráðherra, það yfirfylltist af erlendum pósti, spjöldum, þar sem var verið að segja hvað allt væri dásamlegt í Evrópusambandinu. Þannig var það nú hjá mér. Ég veit ekki hvernig hv. þingmenn upplifa þetta almennt en það var sérstakt að fylgjast með þessu hjá mér. Ég er sammála þessu, það er gríðarlega mikilvægt að það sé í lagi.
Varnar- og öryggismálin: Allt annað landslag, segir þingmaðurinn. Það er furðulegt, fannst mér, að greinargerð þingsályktunartillögunnar snúist rosalega mikið um varnar- og öryggismálin. Ég vil tala um þessi mál, (Forseti hringir.) fræða en ekki hræða, og mér finnst allt of mikið gert um þann þátt í allri þessari umræðu að þetta snúist svolítið mikið hjá mörgum um öryggis- og varnarmál. (Forseti hringir.) Hvað finnst hv. þingmanni um það?