þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir mjög gott andsvar. Ég heyrði það á ræðu þingmannsins áðan að við erum sammála um margt. Mér fannst hans ræða bara ágæt og málefnaleg. Það er rétt og mér finnst gott að heyra að þingmaðurinn óttast það sama og ég, upplýsingaóreiðu og áhrif erlendis frá. Ég er bara einhvern veginn þannig og vil hugsa þetta þannig að á hvorn veginn sem er, hvort sem við erum að fá upplýsingaóreiðu í þá átt að við eigum að óttast Evrópusambandið eða að Evrópusambandið sé svo frábært, þá er það vont. Við viljum bara fá blákaldar staðreyndir sem hægt er að rekja og staðreyna á hvorn veginn sem er.
Af því að ég hef svo stuttan tíma hérna þá langar mig líka til að koma aðeins inn á þetta með umræðuna um varnarmálin og að landslagið sé breytt. Ég er sammála. Við nefnum það kannski af því að það er svolítið tilfinningalegt, (Forseti hringir.) eða ég fæ að nefna af því að það er svolítið tilfinningalegt fyrir mig. Maður hefur verið pínu gáttaður á því hvað er að gerast. En ég er sammála því að þetta er ekki eitt af því sem á endilega að vera aðalkjarninn í allri þessari umræðu hér. (Forseti hringir.) Við þurfum aðeins að sortera þetta frá líka.