157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:18]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Það er gott að við séum sammála um þáttinn sem snýr að varnar- og öryggismálum sem var gert svona hátt undir höfði í þingsályktunartillögunni fyrir tveimur mánuðum síðan. Það er gríðarlega mikilvægt að fólk þekki samhengi hlutanna og að það sé ekki verið að hræða fólk inn í Evrópusambandið vegna varnar- og öryggismála. 80% af fjárveitingum inn í NATO koma frá ríkjunum sem eru utan Evrópusambandsins. Evrópusambandsríkin fjármagna 20% af vörnum NATO. Það er bara staðan. Það mun taka langan tíma að byggja upp það afl innan Evrópusambandsríkjanna til að ná upp getu NATO, enda er NATO ekkert að fara. Það er ég fullviss um. Þetta þykir mér mikilvægt í allri þessari umræðu, að halda því algerlega á hreinu hvernig þetta land liggur. (Forseti hringir.) Lissabon-sáttmálinn 42. gr., punktur 7, er ekki að fara að bjarga Evrópu í varnar- og öryggismálum.