þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni aftur fyrir hans seinna andsvar og tek aftur undir það að þetta á ekki að stýra umræðunni, einhver hræðsluáróður um að við séum að verða án varna. En að sama skapi á heldur ekki að senda út hræðsluáróður um að við séum með þessu að afsala okkur auðlindum. Það er líka eitthvað sem við heyrum hérna orðið daglega, að bara hreinlega með því að spyrja já eða nei þá er bara strax kominn einhver ótti um að nú séum við að afsala okkur auðlindum landsins, að það sé nánast bara á borðinu að það muni vera samningur upp á það að við séum að tapa fiskveiðum o.s.frv. Það er líka rangt. Fyrst og fremst vitum við ekkert hvað er í þessum samningi, alveg sama hvað einhverjir segja að við vitum hvað stendur í þessum samningi. Þessi samningur er ekki til og það er útilokað að segja nákvæmlega hvað stendur í honum. Við getum ímyndað okkur eitthvað en við vitum það. Það er álíka galið að hanga í því eins og að segja bara að við verðum að fara inn í sambandið af því að við höfum engar varnir. (Forseti hringir.) Ég vona að þingmaðurinn sé sammála mér um þetta líka.